Rihanna ætlar í samstarf við River Island og hannar fatalínu fyrir fyrirtækið.
NORDICPHOTOS/GETTY
Rihanna er ekki við eina fjölina felld; hún lék í sinni fyrstu kvikmynd á árinu og nú hyggst hún hanna fatalínu fyrir tískumerkið River Island. „Mig hefur lengi langað að hanna mína eigin fatalínu. River Island er hinn fullkomni samstarfsaðili og mér þótti eftirsóknarvert að vinna með bresku, fjölskyldureknu fyrirtæki,“ sagði Rihanna í tilkynningu um málið. „London veitir mér innblástur og River Island hannar skemmtilegan fatnað. Ég hlakka til að vinna með þeim og skapa eitt og annað alveg sérstakt.“ Áætlað er að fatalína Rihönnu komi í verslanir vorið 2013.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Leikkonan Malin Akerman og raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian Odom eru báðar afar kjarkaðar að fjárfesta í þessum kjól frá T by Alexander Wang.
Meira
"Mér datt í hug að halda fatamarkað þegar ég var að taka til í skápunum mínum. Ég þurfti einnig að taka almennilega til í kjallaranum í vetur og þá ákvað ég að gera eitthvað í þessu,“ segir Rut ...
Meira
Leikkonan Jennifer Aniston mætti í blómakjól frá Prada í brúðkaup stjörnuparsins Lake Bell og Scott Campbell um helgina en þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún klæðist kjólnum.
Meira
Brúðarkjóll Elizabeth Taylor sem hún klæddist þegar hún giftist fyrsta eiginmanni sínum, Conrad Hilton árið 1950, hefur verið settur til sölu í uppboðshúsinu Christie's í London.
Meira
True Blood-stjarnan Anna Paquin er sjóðheit í nýjasta tölublaði tímaritsins Manhattan. Er þetta fyrsta myndatakan sem Anna fer í síðan hún eignaðist tvíbura í september á síðasta ári.
Meira
Gallabuxnaefnið verður ríkjandi í sumartískunni aftur í ár. Gallajakkar, gallabuxur, gallaskyrtur, gallasamfestingar og gallastuttbuxur; öllu þessu má nú klæðast saman án þess að notkun gallaefnisins ...
Meira
"Ein af fyrirsætum Elite sem verða í hársýningu TIGI er Sigurlaug Birna Guðmundsdóttir en hún vann Elite Model Look 2012 hérlendis sem er ein stærsta fyrirsætuleit heims og fór hún áfram í lokakeppnin...
Meira
Glamúrmódelið Courtney Stodden er ekki þekkt fyrir að hylja líkama sinn með efnismiklum fötum. Hún toppaði sjálfa sig samt alveg þegar hún fór í partí í Hollywood í vikunni.
Meira