Lífið

Hanna Rún um OMAM tökurnar: „Það er ekki oft eða bara aldrei sem ég mála mig ekki sjálf“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega flott myndband.
Virkilega flott myndband. vísir
„Ótrúlega flott lag hjá þessum meisturum. Ég og Nikita fengum þann heiður að vera beðin um að dansa í nýjasta myndbandinu þeirra,“ segir Hanna Rún Bazev Óladóttir en hún fer á kostum í nýju myndbandi hljómsveitarinnar Of Monsters and Men ásamt eiginmanni sínum Nikita Bazev.

Myndbandið er við lagið Wolves Without Teeth og kom það út í gær. Hanna bloggar um þessa reynslu þeirra á síðunni sinni.

„Það er ekki oft eða bara aldrei sem ég mála mig ekki sjálf svo það var lúxus að þurfa ekkert að spá í það. Förðunardaman sem sá um allt makeupið var alveg æðisleg.“

Hún segir að tökurnar hafi gengið vel.

„Við Nikita kynntumst heldur betur fullt af alveg yndislegu og frábæru fólki í tökunum,“ segir Hanna og bætir við að Nikita hafi horft á myndina Ice Age þegar þau þurftu að bíða eftir næstu töku.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×