Sport

Hanna Rún hafði betur gegn Sigga í Dans dans dans-uppgjörinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hanna Rún Óladóttir og Nikita Bazev ætla sér stóra hluti á komandi árum.
Hanna Rún Óladóttir og Nikita Bazev ætla sér stóra hluti á komandi árum. mynd/aðsend
Dansparið og hjónin Hanna Rún Óladóttir og Nikita Bazev unnu alþjóðlegu danskeppnina í latin-dönsum á Reykjavíkurleikunum sem fram fór í Laugardalshöll í gærkvöldi.

Hanna Rún og Nikita eru að snúa aftur á gólfið eftir barnsburð Hönnu, en þau hófu að dansa saman fyrir tveimur árum.

Áður dansaði Hanna Rún með Sigurði Þór Sigurðssyni, en þau gerðu garðinn frægan í tveimur þáttaröðum af dansþættinum Dans dans dans sem sýndur var á RÚV.

Hanna Rún hafði betur í uppgjörinu við sinn fyrrverandi dansfélaga því Sigurður og félagi hans, Annalisa Zoanetti, höfnuðu í öðru sæti. Ástrós Traustadótir og Javier Fernandes urðu í þriðja sæti.

Hanna Rún og Nikita unnu tvöfalt því einnig var keppt um Íslandsmeistaratitilinn í latin-dönsum á Reykjavíkurleikunum. Í þeirri keppni urðu Ástrós og Javier í öðru sæti en bæði pör unnu sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Austurríki í haust.

Hér að neðan má sjá myndband af sólódansi Hönnu Rúnar og Nikita þar sem þau dansa Sömbu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×