Innlent

Hanna Birna segir Teigskóg í stjórnsýsluflækju

Heimir Már Pétursson skrifar
Innanríkisráðherra segir deilurnar um veglagningu um Teigskóg á sunnanverðum Vestfjörðum komnar í stjórnsýsluflækju og nýleg niðurstaða Skipulagsstofnunar sé vonbrigði. Ráðherra útilokar ekki að sett verði sérlög til að höggva á hnútinn.

Deilur hafa staðið um veg um Teigskóg í hartnær áratug og fyrir fimm árum hafnaði Hæstiréttur þáverandi tillögu um veglagningu.

Skipulagsstofnun hafnaði því síðan á dögunum að ný tillagan færi í nýtt umhverfismat, þar sem ekki sé unnt að líta á þá tillögu sem nýja framkvæmd þar sem þegar væri búið að hafna leið um Teigsskóg og ekki lagalegar heimildir til að hefja nýtt matsferli.

Vegagerðin hefur nú ákveðið að kæra þessa ákvörðun Skipulagsstofnunar til úrskurðarnefndar skipulagsmála.

Ólína Þorvarðardóttir varaþingmaður samfylkingarinnar hóf sérstaka umræðu um vegamál á Vestfjörðum á Alþingi í dag.

Hún sagði á meðan málið væri fast í lagaflækjum streymdi fjármagn til annarra og ekki eins áríðandi framkvæmda.

Ágreiningurinn um veglagningu um Teigskóg er að verða málið endalausa. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra sem og allir þeir þingmenn sem tóku til máls á Alþingi í dag eru sammála Ólínu Þorvarðardúttur um að málið þoli enga bið. Ráðherra sagði reyndar að leysa þyrfti það á allra næstu mánuðum.

„Telur ráðherra koma til greina að skoða sérstaka lagasetningu vegna málsins, já,“ sagði Hanna Birna. „Það þýðir ekki að ég sé að flytja hér frumvarp á næstu dögum um slíkt. En ég tel það ekki útlilokað,“ sagði innanríkisráðherra.

Hins vegar þurfi að skoða aðrar mögulegar leiðir vandlega en niðurstaða um endanlega leið verði að liggja fyrir á næstu mánuðum enda um að ræða mikilvægust samgöngubót á landinu. Hún myndi m.a. eiga fund með þingmönnum kjördæmisins á morgum sem og með vegamálastjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×