Handbolti

Hanna ætlar að spila til fertugs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hanna í leik með Stjörnunni.
Hanna í leik með Stjörnunni. vísir/valli
Hin síunga handboltakona, Hanna G. Stefánsdóttir, er ekkert að íhuga að leggja skóna á hilluna.

Hún er nefnilega búin að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við Stjörnuna.

Hanna kom til félagsins frá Haukum árið 2010 og hefur verið lykilmanneskja í Stjörnunni síðan.

Hún er orðin 37 ára gömul og verður því tæplega fertug er samningur hennar við Stjörnuna rennur út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×