Innlent

Haninn Kristján hefur ekki galað sitt síðasta

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
"Hanarnir sjá um að koma hænunum inn og hafa röð og reglu á þeim,“ segir Kristján Ingi Jónsson sem hefur ekki gefist upp.
"Hanarnir sjá um að koma hænunum inn og hafa röð og reglu á þeim,“ segir Kristján Ingi Jónsson sem hefur ekki gefist upp. vísir/vilhelm

Kristjáni Inga Jónssyni ber að fjarlægja tvo hana af lóð sinni að Syðri-Reykjum 3. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál en með því staðfestir hún niðurstöðu heilbrigðisnefndar Mosfellsbæjar. Kristján ætlar ekki að una úrskurðinum.

Málið er nú orðið um fimm ára gamalt. Kristján heldur á lóð sinni flokk landnámshænsna en fremstir í flokki fara tveir hanar. „Ef hænurnar eru einar þá verða alls konar læti á milli þeirra. Með hönunum myndast goggunarröð og hænurnar komast ekki upp með neitt,“ segir Kristján

„Þetta byrjaði árið 2012,“ segir Vígmundur Pálmarsson, íbúi að Reykjarhvoli og nágranni Kristjáns. Vígmundur segir nágrannana flesta á einu máli. „Ef það er blindbylur heyrir maður lítið í fuglunum en þetta er afar hvimleitt yfir sumartímann.“

Í gegnum árin hefur verið deilt um hvort Syðri-Reykir 3 séu lögbýli eður ei þar sem samþykkt um hænsnahald í Mosfellsbæ gildir ekki um lögbýli. Hús Kristjáns er í deiliskipulagi auðkennt sem Syðri-Reykir 3 en í fasteignaskrá Þjóðskrár er það tilgreint sem Reykjahvoll 5. Árið 1991 voru lóðir skildar frá jörð Syðri-Reykja 2 og er hin umdeilda spilda ein þeirra. Var það niðurstaða Þjóðskrár og úrskurðarnefndarinnar að Syðri-Reykir 3 hefðu orðið að Reykjahvoli 5 og dottið út af lögbýlaskrá. Því væru hanarnir í órétti.

„Fyrir það fyrsta þá er Reykjahvoll sunnan við Varmá. Ég bý norðan við Varmá,“ segir Kristján. „Til að koma mér út af lögbýlaskrá hafa menn reynt að breyta heimilisfanginu, endurnefna lóðina og breyta lóðanúmerinu. En þegar þeir senda mér bréf þá eru þau stíluð á Syðri-Reyki 3.“

Kristján segir fuglana hafa það mjög gott. Það sé rúmt um þá í kofanum sínum og þeir fái að fara út löngum stundum yfir sumartímann. Hins vegar sé búið að setja út á aðstöðu þeirra. „Það er svolítið skondið því það er sami dýraeftirlitsmaður og hélt hlífiskildi yfir Brún­eggjamönnum,“ segir Kristján.

Hann stefnir á að kæra úrskurð nefndarinnar. Hann hafi alla pappíra sem sýni að niðurstaðan hvaðvarðar lögbýlaskráninguna sé röng.

„2017 er ár hanans, ég fæddist eldhani á ári hanans þannig að ég fer í hanaslaginn,“ segir Kristján. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×