Enski boltinn

Hangeland til Crystal Palace

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Brede Hangeland í landsleik með Noregi.
Brede Hangeland í landsleik með Noregi. Vísir/Getty
Brede Hangeland er genginn í raðir Crystal Palace frá Fulham. Norski landsliðsmaðurinn skrifaði undir eins árs samning við Palace, en hann kemur til liðsins á frjálsri sölu.

Hangeland kom til Fulham frá FC Kaupmannahöfn í janúar 2008. Hann lék 267 leiki og skoraði tólf mörk fyrir Lundúnarliðið.

Hangeland hefur leikið 91 landsleik fyrir Noreg og skorað fjögur mörk.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×