Innlent

Handtekinn á heimili í Kópavogi grunaður um líkamsárás

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá Kópavogi.
Frá Kópavogi. Vísir/GVA
Karlmaður var handtekinn á heimili í Kópavogi um sexleytið í gærkvöldi, grunaður um líkamsárás. Að sögn lögreglu var maðurinn mjög ölvaður og var hann vistaður í fangageymslu í nótt.

Þá var á fjórða tímanum í nótt tilkynnt um menn sem voru að fara í ólæstar bifreiðar í Grafarholti. Lögregla hafði afskipti af tveimur mönnum á vettvangi. Þeir höfðu ekki náð að stela úr bílunum en reyndust með ætluð fíkniefni í vösum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×