Lífið

Handtekin eftir ástarleiki

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Leikkonan Daniele Watts, sem er líklega best þekkt fyrir að leika í myndinni Django Unchained, var handtekin í Los Angeles í vikunni eftir að lögreglu barst tilkynningu um ungt par í ástaratlotum í lögðum bíl.

Watts segist hafa verið handtekin fyrir að hafa smellt kossi á eiginmann sinn, Brian James Lucas, sem er hvítur á hörund, á meðan vitni segja að þau hafi í reynd verið að stunda kynlíf. Lucas segir á Facebook að það hafi legið í augum uppi að lögreglumennirnir hafi talið sig vera vændiskaupanda og eiginkonu hans vera vændiskonu. 

„Þau sáu hvítan rokkarastrák og heita svarta stúlku með stóran afturenda og héldu að við værum „hóra“ og „kóninn“ hennar,“ segir Lucas.

Lucas segir að Watts hafi skorið sig á handjárnunum en samkvæmt lögreglunni í Los Angeles var parið „sett í stutt varðhald“. Fréttin fór sem eldur um sinu á netheimum, þar sem fram kom að Watts hafi verið handtekin fyrir það eitt að kyssa manninn sinn en í gær kom síðan fram á slúðursíðunni TMZ að sést hafi til parsins í ástaratlotum samkvæmt vitnum.

Daniele Watts.visir/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×