Íslenski boltinn

Handhafi markametsins meðal þeirra sem vilja komast í stjórn KSÍ

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Torfason varð markakóngur og Íslandsmeistari með Fram 1986 og jafnaði þá markamet Péturs Péturssonar.
Guðmundur Torfason varð markakóngur og Íslandsmeistari með Fram 1986 og jafnaði þá markamet Péturs Péturssonar. Vísir/Safn/Brynjar Gauti
Það verða margra augu á 71. ársþingi Knattspyrnusambands Íslands sem fer fram í Vestmannaeyjum laugardaginn 11. febrúar næstkomandi.

Framundan er ekki bara spennandi formannskosning heldur einnig spennandi kosning stjórnarmanna þar sem átta manns keppa um fjögur laus sæti..

Björn Einarsson og Guðni Bergsson berjast um formanninn eins margoft hefur komið fram en annarhvor þeirra mun taka við af Geir Þorsteinssyni sem ákvað að hætta formennsku KSÍ.

Átta keppa síðan um að fjögur laus sæti í stjórn KSÍ en tveggja ára kjörtímabili fjögurra aðila lýkur að þessu sinni. Gylfi Þór Orrason hefur ákveðið að hætta en Guðrún I. Sívertsen (Reykjavík), Róbert Agnarsson (Reykjavík) og Vignir Már Þormóðsson (Akureyri) sækjast öll eftir endurkjöri.

Fimm aðrir bjóða sig fram en það eru Borghildur Sigurðardóttir (Kópavogi), Einar Hermannsson (Reykjavík), Guðmundur Torfason (Reykjavík), Magnús Gylfason (Hafnarfirði) og Reynir Vignir (Reykjavík).

Tveir af þessum fimm eru þekktir fyrir framgöngu sína í boltanum, annar fyrrum landsliðsmaður en hinn á að baki átta tímabil sem þjálfari í efstu deild.

Guðmundur Torfason er einn af fjórum sem eiga markametið í efstu deild á Íslandi en hann skoraði 19 mörk fyrir Fram sumarið 1986. Guðmundur varð Íslandsmeistari með Fram þetta sumar en vann einnig bikarinn með Framliðinu 1979, 1980 og 1985.

Guðmundur á markametið með þeim Pétri Péturssyni (ÍA 1978), Þórði Guðjónssyni (ÍA 1993) og Tryggva Guðmundssyni (ÍBV 1997) en öllum tókst þeim að skora 19 mörk á einu tímabili.

Magnús Gylfason er margreyndur þjálfari sem hefur stýrt liðum í 147 leikjum í efstu deild karla á Íslandi. Magnús Gylfason hefur verið undanfarið í landsliðsnefnd KSÍ.

Það má lesa meira um þessa tvo sem og alla hina sem bjóða sig fram í framboðsgögnum sem eru aðgengilegar í frétt um kjörið á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×