Handbolti

Handboltafélögin kvarta ekki undan dómarakostnaði

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gísli Hlynur Jóhannsson, Hafsteinn Ingibergsson og kollegar þeirra eru ekki að setja félögin í handboltanum á hliðina.
Gísli Hlynur Jóhannsson, Hafsteinn Ingibergsson og kollegar þeirra eru ekki að setja félögin í handboltanum á hliðina. Vísir/Stefán
„Við erum svona þokkalega sátt við dómarakostnaðinn – þetta er alveg viðráðanlegt,“ segir Helga Björk Eiríksdóttir, formaður handknattleiksdeildar Fram, við Fréttablaðið um þann kostnað sem fellur á félögin í Olís-deildum karla og kvenna í handbolta.

Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær ná tekjur af heimaleikjum liðanna í úrvalsdeildunum í körfubolta ekki upp í kostnað dómaranna. Í körfunni er ekki óalgengt að kostnaður við leik hlaupi á 70 þúsundum króna fyrir heimaliðið.

Kostnaðurinn í handboltanum er öllu minni og þarf ekki að hafa jafn mikið fé á milli handanna á meðan á tímabilinu stendur. Lið greiða þó vissa upphæð í jöfnunarsjóð sem dómarakostnaðurinn er svo niðurgreiddur með.

Náum að dekka kostnaðinn

Dómari í úrvalsdeild karla og kvenna í handboltanum fær 15.900 fyrir sín störf frá félaginu og eftirlitsmaður 10.790. Allur ferðakostnaður og fæðispeningur, sá kostnaður sem er að gera út af við félögin í körfunni, er greiddur af HSÍ.

Eftirlitsmaður er ekki á öllum leikjum í úrvalsdeild karla en sé slíkur á leik er heildarkostnaður heimaliðs 42.590. Eftirlitsmenn eru ekki í Olís-deild kvenna þannig að kostnaður heimaliðs verður 31.800 krónur fyrir hvern leik.

„Reksturinn er erfiður í handboltanum en þetta er ekki það sem við höfum áhyggjur af,“ segir Helga Björk. Ná tekjur af heimaleikjum að dekka dómarakostnaðinn, ólíkt því sem svo algengt er í körfuboltanum ef marka má orð þeirra formanna sem Fréttablaðið hefur rætt við í vikunni?

„Að jafnaði náum við alltaf að dekka þetta. Svo koma stórir leikir inn á milli sem vega upp minni leiki,“ segir Helga Björk.

Ósáttur með eftirlitsmenn

Kostnaðurinn við dómara í Olís-deild karla er mestur þegar þarf að senda menn til Akureyrar. Akureyringar borga þó það sama og aðrir á meðan á leiktíðinni stendur.

„Kostnaðurinn endar samt á okkur þótt hann sé ekki borgaður úr okkar vasa. Hann er lagður jafnt á félögin. Við leggjum bara ekki út fyrir þessu í hvert skipti,“ segir Hlynur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Akureyrar handboltafélags.

Hann setur sig ekki mikið upp á móti dómarakostnaðinum en er ósáttur við að fá eftirlitsmenn reglulega norður sem hann sér ekki mikinn tilgang í.

„Þetta er bara eftirlaunasjóður – það hef ég sagt áður. Ég skil ekki hvað er verið að senda þessa menn. Þeir setja kannski út á að það vanti eitt skilti frá Olís eða eitthvað. Það er allt í lagi að þeir komi einu sinni og taki út umgjörðina en það er óþarfi að vera að senda þá lon og don. Það má nýta þennan pening sem þeir fá í miklu mikilvægari hluti,“ segir Hlynur.

Knattspyrnan í sérflokki

Dómarakostnaður er ekki eitthvað sem liðin í deildakeppninni í knattspyrnunni þurfa að hafa áhyggjur af. KSÍ tók þá ákvörðun upp úr hruninu að dekka allan kostnað, en sambandið útvegar og borgar dómara meira að segja í 2. flokki.

„Það var svigrúm til að gera þetta og félögin voru almennt í ákveðnum vandræðum eftir hrun. Því var ákveðið að létta á þeim,“ segir Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ.

Knattspyrnusambandið er auðvitað mun betur stætt en hin tvö enda fær það myndarlega styrki frá UEFA á ári hverju, eitthvað sem Evrópusamböndin í körfunni og handboltanum bjóða ekki upp á og hafa ekki bolmagn til að gera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×