Bíó og sjónvarp

Han Solo og Leia prinsessa á nýjum veggspjöldum fyrir Star Wars

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Harrison Ford snýr aftur sem Han Solo.
Harrison Ford snýr aftur sem Han Solo.
Nú þegar mánuður er í frumsýningu á Star Wars: The Force Awakens dælist út kynningarefnið. Í dag gáfu aðstandendur myndarinnar út ný veggspjöld og þar má sjá Han Solo og Leiu prinsessu en enn bólar ekkert á Luke Skywalker.

Það er fallegt að sjá Han Solo haldandi á þessari geislabyssu ásamt því hvernig Finn, Daisy og Kylo Renn halda utan um geislasverðin sín. Blaðamanni Vísis sýnist einnig að það glitti í hina frægu snúða Leiu prinsessu.

Enn bólar þó ekkert á Luke Skywalker í kynningarefni myndarinnar en hann var hvorki á veggspjaldi myndarinnar sem birt var fyrir tveimur vikum né í nýjustu stiklu myndarinnar. J.J. Abrams, leikstjóri myndarinnar, segir reyndar að það sé enginn tilviljun en þangað til myndin verður frumsýnd geta menn aðeins velt því fyrir sér hvert hlutverk Luke Skywalker er í Star Wars myndinni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×