Hamskipti Vesturports best í Boston Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 15. maí 2013 13:42 Hamskipti var valin besta gestasýningin á Elliot Norton verðlaununum. Mynd/Vísir
Leikhópurinn Vesturport vann til Elliot Norton verðlaunanna í Boston á mánudagskvöldið. Voru þau tilnefnd í þremur flokkum fyrir leiksýninguna Hamskipti en tvenn verðlaun féllu þeim í skaut. Uppsetning hópsins á Hamskiptum var valin besta gestasýningin af leikhúsgagnrýnendum og Gísli Örn Garðarsson var einn þriggja leikara sem tilnefndir voru sem besti leikari í aðalhlutverki. Þá fékk Börkur Jónsson verðlaun fyrir bestu sviðsmynd, en ljósahönnun Björns Helgasonar og hljóðhönnun Nick Mannings voru hluti af sviðsmyndinni. Börkur Jónsson er einn fremsti leikmyndahönnuður landsins, en eins og Vísir hefur greint frá hlaut hann nýlega Reumert-verðlaun fyrir bestu sviðsmynd á árlegri leiklistarhátíð Dana.Óvæntur heiður„Það kom okkur fyrst og fremst á óvart að vera tilnefnd. Þessi verðlaun eru búin að vera mjög virt innan leikhúsbransans í 48 ár svo þetta er bara virkilega ánægjulegt“, segir Gísli Örn, sem er í skýjunum yfir verðlaununum. „Boston er algjör leiklistarborg og margar virkilega flottar sýningar sem fara þarna í gegn. Við vorum til dæmis að keppa á móti leiksýningunni Warhorse sem breska þjóðleikhúsið setti upp. Það er gífurlegur heiður að vinna svona stóran flokk.“ Hvorki Gísli né aðrir meðlimir Vesturports gátu verið viðstödd verðlaunaafhendinguna á mánudaginn. „Nei, því miður gátum við ekki farið til Boston og tekið við þessu. Ætli þeir sendi stytturnar ekki bara í pósti eða við pikkum þær upp næst þegar við erum á ferðinni“, segir Gísli, sem telur líklegt að leikhópurinn setji upp aðra sýningu í Boston á næstunni.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira