Hampiðjan býður hlut sinn í HB Granda til sölu Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. apríl 2016 10:07 Hampiðjan á tæplega níu prósentu hlut í HB Granda. vísir/gva
Hampiðjan hefur ákveðið að bjóða til sölu hlutafé sitt í HB Granda hf í tengslum við kaup á hlutfé í P/F Von í Færeyjum. Sala hlutafjárins mun fara fram með útboði. Hampiðjan hf. hefur nú þegar tryggt fulla fjármögnun kaupanna á P/F Von, en hefur engu að síður áhuga á að kanna möguleikann á að fjármagna kaupin að hluta til eða í heild með andvirði sölu þess hlutafjár í HB Granda hf. sem nú er í eigu félagsins. Til sölu er 8,79% af skráðu hlutafé HB Granda hf og mun fjárfestingabankasvið Arion banka hafa umsjón með framkvæmd útboðsins. Tilboðsfrestur rennur út klukkan 16.00 þann 3. maí næstkomandi og verður tilkynnt um niðurstöðu útboðsins í fréttakerfi Nasdaq kauphallar eigi síðar en klukkan 9.30 þann 4. maí 2016. Í tilkynningu sem birtist í fréttakerfi kauphallarinnar er athygli fjárfesta vakin á því að stjórnarformaður Hampiðjunnar hf., Vilhjálmur Vilhjálmsson, er jafnframt forstjóri HB Granda hf. og að einn stjórnarmaður Hampiðjunnar hf., Kristján Loftsson, er einnig stjórnarformaður HB Granda hf. Jafnframt er Kristján stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Vogunar hf. sem á 37,61% hlut í Hampiðjunni hf. og 33,51% hlut í HB Granda hf. og formaður stjórnar Fiskveiðafélagsins Venus hf., sem á 14,59% eignarhlut í Hampiðjunni hf. og 0,65% eignarhlut í HB Granda hf. Vogun hf. er að nær öllu leyti í eigu Hvals hf., þar sem Fiskveiðafélagið Venus hf. er stærsti hluthafinn með 39,5% eignarhlut. Loks eru þeir Vilhjálmur og Kristján báðir hluthafar í HB Granda hf. og Hampiðjunni hf. í eigin nafni.
Mest lesið Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Viðskipti innlent Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Viðskipti innlent Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Viðskipti innlent Oculis komið á markað Viðskipti innlent Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Viðskipti innlent Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Viðskipti innlent Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkanir Neytendur „Enda hefði hún hreinlega ekki nennt að þræta við mig endalaust“ Atvinnulíf Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Viðskipti innlent Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Tekur við stöðu rekstrarstjóra Stöðvar 2 Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Sjá meira