Fótbolti

Hammarby á sigurbraut

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Birkir og Ögmundur voru á sínum stað í byrjunarliði Hammarby.
Birkir og Ögmundur voru á sínum stað í byrjunarliði Hammarby. mynd/guðmundur svansson
Íslendingaliðið Hammarby vann sinn fjórða sigur í síðustu sjö leikjum þegar liðið lagði Jonköpings að velli með einu marki gegn engu á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Hinn þrautreyndi Kennedy Bakircioglu skoraði eina mark leiksins á 75. mínútu.

Ögmundur Kristinsson, Birkir Már Sævarsson og Arnór Smárason voru allir í byrjunarliði Hammarby í dag. Liðið er í 9. sæti deildarinnar með 29 stig eftir 22 leiki.

Í hinum leik kvöldsins gerðu Örebro og Sundsvall 3-3 jafntefli.

Hjörtur Logi Valgarðsson lék ekki með Örebro og sömu sögu er að segja af Kristni Steindórssyni hjá Sundsvall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×