Lífið

Hamingjusöm fjölskylda Britney Spears

Britney Spears er oftast á milli strákanna.
Britney Spears er oftast á milli strákanna. mynd/instagram
Poppstjarnan Britney Spears birti á dögunum mynd af sér ásamt tveimur sonum sínum á samfélagsmiðilinn Instagram en fjölskyldan virðist mjög hamingjusöm.

Spears, 32 ára gömul móðir strákanna Sean og Jayden Preston tók myndina heima hjá sér þar sem strákarnir sjást troða sér inn á myndina sem er að mati blaðamanns tilvalin til innrömmunar.

Yfir sumartíðina hefur poppstjarnan birt ófáar myndir af strákunum og sér á Instagram-aðgangi sínum en þá stendur hún oftast í miðjunni með strákanna á hvorri hlið sér.

Nýjustu myndina má sjá hér að neðan auk þess sem hægt er að renna í gegnum Instagram-aðgang söngkonunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×