Heilsa

Hamingju bláberjaís Heilsugengisins

Rikka skrifar
Bláber er ein af ofurfæðum náttúrunnar og þau íslensku eru í topp klassa. Ef þú átt bláberja uppskeru í frystikistunni þá er ég með ótrúlega fljótlegan, mein hollan og geggjaðan ísdesert handa þér.

Bláberjaís 
fyrir 2
 
300 gr ca frosin bláber
50gr gott dökkt 85% súkkulaði
1/2 dl af rjóma
1/4 tsk vanilluduft 
Pínu sætuefi: til dæmis 4 dr af súkkulaði eða vanillu stevia dropar eða 2 tsk pálmasykur
 

Þú setur frosin berin í skál og hristir aðeins í þeim þannig að þau losni frá hvort öðru
Súkkulaðið skerðu í litla bita og blandar við frosnu berin ásamt vanilludufti og sætuefni
Heltu rjómanum yfir en ekki svo mikið að berin syndi í honum. Þú vilt að rjóminn frysti við berin. 
Nú hræriru með skeið eða sleif og mátt vera smá ákveðin og hakka pínu í berin þannig að nokkur af þerim merjist og rjóminn blandast vel í.
Tilbúið! Og svo er bara að njóta ! 

Tengdar fréttir

Mataræði algjört lykilatriði

Heilsugengið hefur göngu sína á ný í kvöld á Stöð 2. Gestir þáttarins í kvöld eru Bubbi Morthens og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×