Formúla 1

Hamilton og Rosberg mega keppa en ekki klessa á hvorn annan

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Framvængurinn brotnaði af bíl Rosberg í árekstrinum.
Framvængurinn brotnaði af bíl Rosberg í árekstrinum. Vísir/Getty
Yfirmenn Mercedes liðsins í Formúlu 1 hafa komist að þeirri niðurstöðu að liðsskipunum verði ekki beitt en ökumenn skuli passa sig á að keyra ekki á hvorn annan.

Mercedes liðið íhugaði alvarlega að hefja að beita liðsskipunum eftir árekstur ökumanna liðsins í Austurríki síðustu helgi.

„Glórulaust,“ var orðið sem liðsstjóri Mercedes, Toto Wolff notaði um atvikið. Nico Rosberg og Lewis Hamilton, ökumenn Mercedes lentu í samstuði á síðasta hring keppninnar í Austurríki.

Hamilton og Rosberg snertust í Kanada og keyrðu hvorn annan út úr spænska kappakstrinum. Ökumennirnir hafa keyrt á hvorn annan í þremur af síðustu fimm keppnum.

Mercedes hefur hert reglur liðsins um refsingar sem beitt verður ef atvik sem þessi endurtaka sig.

„Ef ökumennirnir halda sig ekki við hertar reglur þá munum við beita liðsskipunum sem síðasta úrræði,“ sagði Wolff.

Annað atvik eins og það í Austurríki gæti leitt til brottreksturs annars ökumanns.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Atgangurinn í Austurríki

Lewis Hamilton á Mercedes vann austurríska kapaksturinn um helgina. Keppnin var dramatísk svo ekki sé sterkar til orða tekið. Nico Rosberg hefði auðveldlega getað siglt keppninni heim með smá skynssemi.

Prost vann en Buemi varð heimsmeistari

Sebastien Buemi var á ráspól eftir tímatökuna í morgun. Keppinautur hans, Lucas di Grassi var þriðji á ráslínunni á eftir liðsfélaga Buemi, Nicolas Prost há Renault e.Dams.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×