Formúla 1

Hamilton notar síðustu refsilausu túrbínuna og MGU-H rafalinn

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton.
Lewis Hamilton. Vísir/Getty
Lewis Hamilton er skrefi nær því að færast aftur á ráslínu fyrir að taka nýja vélarhluta í notkun. Hann fær sína fimmtu túrbínu og hita rafal (MGU-H) til notkunar í Austurríki um helgina.

Ökumenn mega nota fimm eintök af hverjum þeim hlutum sem mynda vélina í Formúlu 1 bíl.

Hamilton hefur verið óheppinn með bilanir á upphafi tímabils. Hann tapaði nokkrum vélum hraðar en áætlun Mercedes liðsins hljóðaði upp á.

Hamilton er að nota fjórðu rafgeymana og fjórðu aksturstölvuna auk þess sem hann er að fara að nota fimmtu túrbínuna og fimmta hitarafalinn.

Byrji einhver ökumaður að nota sjöttu eintökin af einhverjum hlutum, fær sá sami tíu sæta refsingu á ráslínu eftir tímatökuna.

Hamilton segir þetta óumflýjanlegt fyrir sig á þessu tímabili. Það verður að teljast líklegt að hann hafi rétt fyrir sér. Keppnin í Austurríki er sú níunda á tímabilinu en það er 21 keppni á tímabilinu.

„Ég mun reyna að hitta á að refsingin komi þegar ég á möguleika á að vinna mig upp listann, helst myndi ég vilja taka refsinguna út þar sem ég get samt jafnvel reynt að vinna keppnina. Það er það sem ég er að hugsa,“ sagði heimsmeistarinn í samtali við Autosport.

Nico Rosberg, liðsfélagi Hamilton er að nota hluti númer 2. Sama má segja um aðra aðila sem nota Mercedes vélar.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Kostuleg keppni í Kanada

Lewis Hamilton vann sína aðra á tímabilinu í Kanada. Sebastian Vettel náði forsytunni strax í ræsingu fyrir Ferrari en msitök í keppnisáætlun liðsins kostaði ítalska liðið líklega unna keppni.

Rosberg: Ég verð hjá Mercedes í mörg ár í viðbót

Nico Rosberg hefur slökkt á umræðunni um að hann vilji fara frá Mercedes liðinu. Stirð samskipti við liðsfélaga sinn og gríðarlegur launamunur voru taldar ástæður þess að hann vildi fara. Svo virðist ekki vera.

Carlos Sainz hjá Toro Rosso út 2017

Carlos Sainz, ökumaður Toro Rosso verður áfram hjá liðinu samkvæmt Christian Horner, liðsstjóra Red Bull, sem er móðurlið Toro Rosso.

Rosberg: Ég og bíllinn vorum eitt í dag

Nico Rosberg vann fyrsta Bakú-kappakstur sögunnar í dag. Hann sigldi auðan sjó frá upphafi eftir að hafa ræst af ráspól. Hann átti einnig hraðasta hring keppninnar. Hann náði þrennunni.

Arrivabene: Það væri bilun að einblína á 2017

Ferrari liðið þarf að halda athyglinni á yfirstandandi tímabili en ekki horfa eingöngu á 2017 samkvæmt Maurizio Arrivabene liðsstjóra Ferrari. Bilið í Mercedes er 81 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×