Formúla 1

Hamilton klessti á vegg | Mercedes-menn bestir á báðum æfingum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton.
Lewis Hamilton. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingunni fyrir ungverska kappaksturinn. Hann endaði seinni æfinguna á varnarvegg. Nico Rosberg varð annar á Mercedes á fyrri æfingunni en fljótastur á seinni.

Fyrri æfingin

Hamilton setti tíma sem var sjö tíundu hraðar en tíminn sem skilaði ráspól í fyrra. Rosberg sem er ný búinn að endurnýja samning sinn við Mercedes var tveimur tíundu á eftir Hamilton. Báðir ökumenn eru nú samningsbundnir Mercedes út næsta tímabil.

Ferrari liðið raðaði sér á eftir Mercedes og þar á eftir kom Red Bull.

Nýtt malbik á brautinni var hált og náði meira að segja að snúa kempum á borð við Fernando Alonso, Jenson Button og Sebastian Vettel.

Seinni æfingin

Daniel Ricciardo á Red Bull varð annar á seinni æfingunni á eftir Rosberg. Vettel varð aftur þriðji. Tími Rosberg var orðinn einni og hálfri sekúndu fljótari en ráspólstími síðasta árs.

Hamilton varð fimmti, hann missti stjórn á bílnum á æfingunni og skautaði á hlið á varnarvegg. Hamilton gat haldið áfram en var skipað að fara í læknisskoðun. Mælir í bíl hans nam yfir 10G og þá þurfa ökumenn að sæta læknisskoðun í öryggisskyni.

McLaren virðist ganga vel á brautinni en á báðum æfingum voru McLaren ökumennirnir í sjöunda og áttunda sæti. Af því má draga þá ályktun að bíllinn sé í grunninn góður en aflskortur sé þeirra helsta vandamál. Kannski best geymda leyndarmál Formúlu 1.

Bein útsending frá tíamtökunni hefst klukkan 11:50 á morgun á Stöð 2 Sport. Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á sunnudag einnig á Stöð 2 Sport.

Hér fyrir neðan má finna öll helstu úrslit helgarinnar.


Tengdar fréttir

Red Bull vill vinna meira á árinu

Red Bull liðið í Formúlu 1 vill vinna fleiri keppnir á árinu. Liðsstjóri Red Bull, Christian Horner segir liðið hætt að elta Ferrari. Liðið setji nú markið á Mercedes.

Talstöðvasamskipti takmörkuð enn frekar

Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) hefur takmarkað talstöðvasamskipti Formúlu 1 liða við ökumenn enn frekar en þegar hafði verið gert.

Bílskúrinn: Spennandi síðdegi á Silverstone

Lewis Hamilton á Mercedes minnkaði forskot liðsfélaga síns í heimsmeistarakeppni ökumanna niður í eitt stig með því að vinna á heimavelli sínum, síðustu helgi.

Wolff: Red Bull mikil ógn við Mercedes

Heimsmeistarar bílasmiða í Formúlu 1 halda til Ungverjalands í góðum gír eftir að hafa unnið keppnina á Silverstone brautinni þar síðustu helgi. Ungverski kappaksturinn er þó erfiður liðinu sögulega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×