Formúla 1

Hamilton fljótastur en Rosberg endaði á varnarvegg

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton er mættur til leiks með látum.
Lewis Hamilton er mættur til leiks með látum. Vísir/Getty
Lewis Hamilton var fljótastur á báðum föstudagsæfingum fyrir ástralska kappaksturinn. Daniil Kvyat var annar á fyrri æfingunni á Red Bull og Daniel Ricciardo á Red Bull þriðji.

Á seinni æfingunni missti Rosberg grip í beygju sjö og bíllinn endaði á varnarvegg. Brautin í Ástralíu er fræg fyrir að vera hál og sérstaklega í rigningu. Rosberg var sjötti á fyrri æfingunni.

Sjá einnig: Hver veltir Mercedes af stalli í Formúlu 1?

Þrátt fyrir rigningu á fyrri æfingunni náði Hamilton að setja hraðasta tímann á þurrdekkjum undir lok æfinganna. Nico Hulkenberg á Force India og Max Verstappen á Toro Rosso voru fjórðu og fimmtu hröðustu menn.

Hulkenberg varð annar á seinni æfingunni, Kimi Raikkonen varð þriðji á Ferrari og heimamaðurinn Daniel Ricciardo varð fjórði.

Sjá einnig: Hamilton: Ferrari á eitthvað upp í erminni

Seinni æfingin var góð fyrir McLaren liðið en Fernando Alonso varð sjötti og Jenson Button sjöundi. Sebastian Vettel á Ferrari átti erfiðan föstudag og varð áttundi á seinni æfingunni. Honum hafði ekki tekist að setja tíma á fyrri æfingunni.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort þar sem öll úrslit helgarinnar birtast og uppfærast eftir sem á líður.

Formúlu 1 keppnistímabilð hefst í Ástralíu um helgina. Tímatakan fer fram klukkan 06.00 á laugardag og keppnin klukkan 04.30, allt í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Tryggðu þér áskrift á 365.is.




Tengdar fréttir

Hver veltir Mercedes af stalli í Formúlu 1?

Nýtt keppnistímabil í Formúlu 1 hefst um helgina þegar keppt verður í Ástralíu. Heimsmeistarinn Lewis Hamilton vill vinna þriðja árið í röð en hann fær mikla samkeppni frá eigin liðsfélaga og Ferrari-mönnum.

Formúla 1 hefst um helgina

Fyrsta keppni tímabilsins í Formúlu 1 er um helgina. Ástralía er fyrsta stopp og þar eftir færa liðin sig yfir til Bahrein. Aldrei hafa fleiri keppnir verið á keppnisdagatali Formúlu 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×