Formúla 1

Hamilton fljótastur á seinni æfingunni

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton á æfingu í Kína í morgun
Hamilton á æfingu í Kína í morgun Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes náði hraðasta hring á seinni föstudagsæfingunni fyrir Kínakappasturinn í formúlu eitt. Fernando Alonso á Ferrari varð annar. Nico Rosberg á hinum Mercedes bílnum varð þriðji, á undan Red Bull bílunum.

Þrátt fyrir hraðasta hring dagsins var Hamilton ekki ánægður með bílinn. Hann talaði um ójafnvægi í stjórnun bílsins.

Það sem meira er, báðir Mercedes bílarnir virtust slíta dekkjunum mikið.

„Í kvöld þufum við að vinna í okkar málum og átta okkur á hver staðan er. Augljóslega er hún ekki svo slæm, en það má alltaf gera betur og við munum vinna hörðum höndum að því í kvöld að fínpússa uppstillingu bílsins,“ sagði Hamilton.

Mesta athygli hefur vakið að Alonso komst upp á milli Mercedes mannanna. Svo virðist sem Ferrari bíllinn henti mun betur á brautinni í Shanghai. Þar er mun minni áhersla á grip að aftan en hefur verið hingað til á tímabilinu.

Ferrari og Red Bull glíma um heiðurinn af því að vera næst bestir, á eftir Red Bull.

Alonso náði besta tíma fyrri æfingarinnar á meðan Kimi Raikkonen, liðsfélagi hans náði ekki að setja tíma. Bíll hans sat í bílskúrnum alla æfinguna bilaður.

Tímatakan fyrir kappaksturinn í Kína er á dagskrá klukkan 5:50 í fyrramálið á Stöð 2 Sport. Keppnin er svo á dagskrá á sunnudagsmorgun klukkan 6:30.


Tengdar fréttir

Hamilton og Rosberg ræða málin

Nico Rosberg segir að hann og liðsfélagi hans hjá Mercedes muni setjast niður með liðiðnu fyrir kínverska kappaksturinn. Markmiðið er að hreinsa loftið eftir afar spennuþrungna keppni á milli þeirra í Bahrain.

Raikkonen: Við erum ekki heimskir

Ferrari byrjar nýtt tímabil í Formúlu 1 ekki vel en þar á bæ vinna menn hörðum höndum að því að gera bílinn samkeppnishæfan fyrir næstu keppnir.

Mercedes-menn fljótastir í Barein

Mercedes-mennirnir Lewis Hamilton og Nico Rosberg voru fljótastir á báðum æfingum dagsins í Barein í dag. Þriðji varð Fernando Alonso á Ferrari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×