Formúla 1

Hamilton fljótastur á báðum æfingum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton ætlar að láta Rosberg hafa fyrir hlutunum.
Hamilton ætlar að láta Rosberg hafa fyrir hlutunum. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur allra á báðum æfingum dagsins í Abú Dabí. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg var þó ekki langt á eftir.

Mercedes tvíeykið skiptist á að setja hraðasta hring á meðan á fyrri æfingunni stóð. Hamilton náði þó undirtökum í lok hennar.

Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji og Sebastian Vettel á Red Bull fjórði. Williams bílarnir virðast komnir með nóg af 2014, yfirbygging þeirra beggja varð laus og losnaði alveg af hjá Valtteri Bottas. Williams liðið segir að þetta verði ekki vandamál héðan í frá.

Munurinn á milli Hamilton og Rosberg var 0,133 sekúnda á fyrri æfingunni, munurinn var enn minni á seinni æfingunni eða 0,083.

Kevin Magnussen á Mclaren varð þriðji á seinni æfingunni, með þónokkuð af uppfærslum fyrir 2015 á bílnum. Alonso setti ekki tíma á æfingunni vegna vélavandræða.

Romain Grosjean á Lotus verður færður aftur um 20 sæti á ráslínu eftir að hafa þurft að skipta út íhlutum í vél sinni.

Tímatakan verður afar spennandi á morgun, það er erfitt að taka fram úr á Yas Marina brautinni og því mikilvægt að ná góðri stöðu á ráslínu. Sérstaklega fyrir Rosberg og Hamilton sem glíma um heimsmeistaratitil ökumanna.

Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 12:50 á morgun á Stöð 2 Sport. Bein útsending frá keppninni á sunnudag hefst klukkan 12:30 einnig á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir

Upptökudagur hjá McLaren-Honda

McLaren liðið mun mæta á Silverstone brautina á morgun til að prufukeyra nýja Hondu vél fyrir bíl næsta árs. Slíkt er heimilt undir því yfirskyni að um upptökur á auglýsingum sé að ræða. Aka má 100 kílómetra.

Mercedes ábyrgt fyrir heiðarlegri baráttu

Mercedes liðið í Formúlu 1 segir að forgangsatriði liðsins í Abú Dabí verði að tryggja að báðir ökumenn eigi sanngjarna möguleika á heimsmeistaratitlinum.

Bílskúrinn: Ballið í Brasilíu í bland við framtíðarspá

Næst síðasta keppni tímabilsins er búin. Lewis Hamilton leiðir enn þrátt fyrir að Nico Rosberg hafi unnið í Brasilíu. Hvað þarf að gerast til að Rosberg verði meistari, hver sagði hvað um framtíð Formúlu 1 og hver ætlar að hjálpa hverjum að verða heimsmeistari?

Damon Hill telur pressuna vera á Hamilton

Damon Hill sem varð heimsmeistari í Formúlu 1 árið 1996, segir að Abú Dabí verði erfiðari keppni fyrir Lewis Hamilton en Nico Rosberg.

Jules Bianchi ekki lengur haldið sofandi

Jules Bianchi er ekki lengur haldið sofandi, hann hefur verið fluttur heim til Frakklands. Hann er þó enn meðvitundarlaus og ástand hans er enn alvarlegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×