Formúla 1

Hamilton finnst hugmynd Horner hlægileg

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton og Horner hittast í viðurvist Bernie Ecclestone, sem gæti hugsanlega gert breytingarnar sem Horner vill sjá.
Hamilton og Horner hittast í viðurvist Bernie Ecclestone, sem gæti hugsanlega gert breytingarnar sem Horner vill sjá. Vísir/Getty
Eftir slakt gengi í fyrstu keppni tímabilsins kallaði liðsstjóri Red Bull, Christian Horner eftir aðgerðum til að minnka forskot Mercedes.

Horner óskaði eftir því að FIA gerði breytingar til að jafna möguleika liðanna. Hann benti á að aðdáendur íþróttarinnar væru óánægðir með ástandið.

Lewis Hamilton, ríkjandi heimsmeistari ökumanna gerir lítið úr ósk Horners.

„Mér finnst þetta virkilega fyndið, þetta er áhugaverð skoðun frá einhverjum sem hefur náð svo miklum árangri. Það að hann hafi strax eftir fyrstu keppni séð ástæðu til að tjá sig finnst mér mjög fyndið,“ sagði heimsmeistarinn og ökumaður yfirburða liðs Mercedes.

„Það heyrðist aldrei frá okkar liði nein ósk um jafnari keppni. Núna erum við besta liðið, við lögðum allt í sölurnar og stóðum okkur mjög vel og ég er virkilega stoltur af því,“ sagði Hamilton að lokum.


Tengdar fréttir

Getur einhver skákað Hamilton?

Tímabilið í Formúlu 1 fer af stað um helgina þegar 20 ökumenn tíu liða ræsa á Albert Park-brautinni í Ástralíu. Risastórar breytingar hafa orðið á stærstu liðunum og býst sérfræðingur Stöðvar 2 Sports við skemmtilegu tímabili. Heimsmeistarinn er áfram lík

Hamilton hóf titilvörnina af krafti

Lewis Hamilton á Mercedes vann fyrstu keppni tímabilsins, liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar. Sebastian Vettel varð þriðji í sinni fyrstu keppni með Ferrari.

Hamilton: Ég verð hér aftur

Viðbrögðin við keppninni í Ástralíu. Hvað höfðu ökumenn og aðrir að segja um atburðarásina?

Renault: Red Bull lýgur

Sambandið sem skilaði fjórum heimsmeistaratitlum í röð virðist nú leika á reiðiskjálfi.

Bílskúrinn: Mercedes á móti rest

Fyrsta keppnin á Formúlu 1 tímabilinu fór fram um nýliðna helgi. Helgin í heild sinni svaraði sumum spurningum en vakti aðrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×