Formúla 1

Hamilton á ráspól í Singapúr

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton var í góðu formi í dag, en hvað gerist á morgun?
Hamilton var í góðu formi í dag, en hvað gerist á morgun? Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól í Singapúr, liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar. Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Brautin í Marina Bay var flóðlýst að vanda. Fjórar af síðustu keppnum hafa unnist frá ráspól. Það var því mikilvægur ráspól í boði.

Ökumenn glímdu við gripleysi á fyrstu hringjum tímatökunnar. Fyrstur til finna fyrir því var Rosberg. Romain Grosjean á Lotus fann einnig fyrir því.

Í fyrstu lotu duttu út: Kamui Kobayashi og Marcus Ericsson á Caterham, Max Chilton og Jules Bianchi á Marussia, Pastor Maldonado á Lotus og Adrian Sutil á Sauber.

Ferrari menn voru fljótastir í lotunni. Kimi Raikkonen hraðastur og Fernando Alonso annar. Mercedes menn voru skammt undan.

Raikkonen átti kaflaskiptan dag. Fljótastur í fyrstu lotu en svo bilaði bíllinn í þriðju lotunni. Hvað hefði orðið?Vísir/Getty
Í annarri lotu: duttu út Grosjean á Lotus, Sergio Perez og Nico Hulkenberg á Force India, Esteban Gutierrez á Sauber, Jean-Eric Vergne á Toro Rosso og Jenson Button á McLaren.

Í þriðju lotu börðust tíu hröðustu ökumenn dagsins. Loka atlaga ökumanna var spennandi, brautin var stöðugt að kólna sem var líklegra til að skila hraðari tíma.

Bíll Raikkonen bilaði á úthring. Hann gat því ekki tekið þátt í baráttunni um ráspól.

Hamilton náði ráspól í blálokin. Rosberg hafði rétt áður náð ráspól en viðbrögð hans í talstöðinni voru „fjárinn“.

„Þriðja lotan hefði hvort eð er verið erfið. Framendinn var einfaldlega ekki að ná gripi. Við munum ræða mögulegar keppnisáætlanir í kvöld,“ sagði Button eftir að þáttöku hans í tímatökunni lauk.

„Ég læsti dekkjum á leið inn í fyrstu beygju á síðasta hring. Þannig að hringurinn byrjaði ekki alltof vel. Mér tókst að vinna það upp yfir hringinn og ná ráspól,“ sagði Hamilton eftir tímatökuna.

„Bilið var svo lítið. Lewis gerði vel í að ná ráspól svo vel gert hjá honum. Það tók mig smá tíma að finna mig í tímatökunni. Stillingarnar á bílnum voru ekki alveg eins og þær ættu að vera eftir heitari æfingu í morgun,“ sagði Rosberg.

„Það má alltaf reyna á morgun. Við enduðum nær Mercedes en við þorðum að vona. Það verður gaman að sjá hvað við getum gert á morgun. Það er gaman að sjá ástralska fána í stúkunni, takk fyrir stuðninginn,“ sagði Ricciardo. 

Rosberg þurfti að ræða mikið við verkfræðinga sína andlit til andlits. Frammistöðuskilaboðabannið hafði eflaust einhver áhrif í dag.Vísir/Getty
Úrslit tímatökunnar fyrir Singapúr kappaksturinn 2014:

1.Lewis Hamilton - Mercedes

2.Nico Rosberg - Mercedes

3.Daniel Ricciardo - Red Bull

4.Sebastian Vettel - Red Bull

5.Fernando Alonso - Ferrari

6.Felipe Massa - Williams

7.Kimi Raikkonen - Ferrari

8.Valtteri Bottas - Williams

9.Kevin Magnussen - McLaren

10.Daniil Kvyat - Toro Rosso

11.Jenson Button - McLaren

12.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

13.Nico Hulkenberg - Force India

14.Esteban Gutierrez - Sauber

15.Sergio Perez - Force India

16.Romain Grosjean - Lotus

17.Adrian Sutil - Sauber

18.Pastor Maldonado - Lotus

19.Jules Bianchi - Marussia

20.Kamui Kobayashi - Caterham

21.Max Chilton - Marussia

22.Marcus Ericsson - Caterham

Mercedes liðið var ekki eins öruggt í sessi á brautinni eins og venjan hefur verið á tímabilinu. Ferrari, Red Bull og Williams virtust öll eiga möguleika á ráspól í dag. Keppnin á morgun verður spennandi.

Útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á morgun á Stöð 2 Sport.






Tengdar fréttir

Luca di Montezemolo hættir hjá Ferrari

Luca di Mintezemolo hefur sjálfur staðfest að hann ætli að láta af störfum sem forseti Ferrari í næsta mánuði, eftir tveggja áratuga starf.

FIA bannar frammistöðuskilaboð

FIA, alþjóða akstursíþróttasambandið hefur ákveðið að banna öll frammistöðutengd skilaboð í talstöðvum liðanna til ökumanna. Bannið mun taka gildi fyrir keppnina í Singapore, næstu helgi.

Formúlu 1 keppnir 2015

Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA), kynnti í dag keppnisdagatal næsta árs. Keppnirnar verða 20 í heildina, keppni í Mexíkó er eina viðbótin.

Ecclestone: Enn of auðvelt fyrir ökumenn

Bernie Ecclestone, einráður Formúlu 1, hefur sagt að sér þyki starf ökumanna enn of auðvelt. Hann vill að akstur Formúlu 1 bíla verði meiri áskorun.

Alonso og Hamilton fljótastir á föstudegi

Fernando Alonso á Ferrari var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir Singapúr kappaksturinn sem fram fer um helgina. Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á þeirri seinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×