Formúla 1

Hamilton á ráspól í Malasíu á morgun

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Hamilton á flugi fyrr í dag.
Hamilton á flugi fyrr í dag. Vísir/getty
Breski ökuþórinn Lewis Hamilton á Mercedes ræsir fremstur í Malasíu kappakstrinum á morgun en næstur á eftir honum er liðsfélagi hans hjá Mercedes, Nico Rosberg.

Hamilton sem er í harðri baráttu um heimsmeistaratitil ökuþóra gegn liðsfélaga sínum, Rosberg, hefur ekki náð sér á strik í síðustu þremur keppnum.

Rosberg náði besta tíma dagsins er hann kom í mark á 1:35;850 en Rosberg kom í mark tæplega hálfri sekúndu síðar.

Hamilton hefur misst forskotið í baráttunni um heimsmeistaratitil ökuþóra í hendur Rosberg þegar sex keppnir eru eftir en hann getur saxað á átta stiga forskot Rosberg á morgun.

Liðsfélagarnir Max Verstappen og Daniel Ricciardo úr Red Bulls náðu 3-4. besta tíma dagsins en næstir komu Sebastian Vettel og Kimi Raikkonen sem keppa fyrir Ferrari.

Er þetta í 100. skiptið sem Hamilton verður á ráspól í keppni en hann er aðeins annar ökuþórinn sem nær því á eftir hinum goðsagnarkennda Michael Schumacher.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×