Lífið

Halverson kom, sá og sigraði með mögnuðum flutningi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér er allt undir og þá verða keppendur að standa sig.
Hér er allt undir og þá verða keppendur að standa sig. vísir
Josh Halverson mætti í raunveruleikaþáttinn The Voice í vikunni og sló heldur betur í gegn. Hann flutti lagið Forever Young og snerti taugar allra í salnum.

Nú standa yfir blindu áheyrnaprufurnar en þar sjá dómararnir ekki keppendur fyrr en þeir ýta á rauða takkann og þá snýst stóllinn þeirra við. Með því er dómarinn að skuldbinda sig að þjálfa viðkomandi í þáttunum.

Dómarar þáttarins í ár eru þau Adam Levine, Blake Shelton, Miley Cyrus og Alicia Keys. Allir dómararnir ýttu á takkann nema Adam Levine og sá hann strax eftir því stuttu síðar.

Myndband af flutningi Halverson er nú komið inn á YouTube og er strax orðið gríðarlega vinsælt en þegar þessi frétt er skrifuð hafa yfir ein milljón manns horft á manninn með fallegu röddina. Hér að neðan má sjá flutninginn og hvaða dómara hann ákvað að lokum að velja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×