Innlent

Hált á höfuðborgarsvæðinu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Best að fara varlega.
Best að fara varlega. Vísir/Anton
Hálka er á Reykjanesbraut og á höfuðborgarsvæðinu og hálka og éljagangur á Hellisheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Það er einnig hálka eða hálkublettir á nokkrum öðrum leiðum á Suðurlandi og él á stöku stað.

Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Vesturlandi, víða éljagangur og töluverður skafrenningur á Holtavörðuheiði. Þæfingsfærð er á Bröttubrekku.

Á Vestfjörðum er hálka, hálkublettir og sumstaðar snjóþekja eða jafnvel þæfingur á vegum og él eða snjókoma.

Það er víða greiðfært á Norðurlandi en hálkublettir eða hálka á nokkrum köflum, einkum á fjallvegum en vegir eru mikið til auðir á Austur- og Suðausturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×