Körfubolti

Hallveig tók yfir í framlengingunni | Þriðji 50 stiga leikur Tyson-Thomas

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hallveig Jónsdóttir skoraði 11 stig í framlengingunni gegn Snæfelli.
Hallveig Jónsdóttir skoraði 11 stig í framlengingunni gegn Snæfelli. vísir/stefán
Heil umferð fór fram í Domino's deild kvenna í körfubolta í kvöld. Allir fjórir leikirnir unnust á útivelli.

Valur vann mjög svo óvæntan sigur á Snæfelli í Hólminum, 73-82, eftir framlengdan leik.

Hallveig Jónsdóttir, sem átti góða innkomu í leik Íslands og Portúgals í síðustu viku, skoraði 20 stig fyrir Valsliðið sem er búið að vinna þrjá leiki í röð.

Ellefu af 20 stigum Hallveigar komu í framlengingunni sem Valur vann 16-7. Mia Loyd skoraði 15 stig og tók 25 fráköst fyrir Val í kvöld.

Aaryn Ellenberg-Wiley lék allar 45 mínúturnar og skoraði 33 stig, tók sjö fráköst, gaf fjórar stoðsendingar og stal níu boltum fyrir Snæfell sem fékk aðeins þrjú stig frá bekknum í kvöld.

Kelia Shelton sækir að körfu Hauka.vísir/anton
Keflavík nýtti sér tapið hjá Snæfelli og skaust á topp deildarinnar með stórsigri, 46-76, á Haukum á útivelli.

Bæði lið frumsýndu nýja bandaríska leikmenn í leiknum. Kelia Shelton skoraði 15 stig og tók 12 fráköst fyrir Hauka og Ariana Moorer gerði níu stig fyrir Keflavík og tók 12 fráköst.

Keflavík hafði mikla yfirburði í leiknum og komst mest 40 stigum yfir. Á endanum munaði 30 stigum á liðunum, 46-76.

Tyson-Thomas hefur verið mögnuð í vetur.vísir/anton
Carmen Tyson-Thomas sneri aftur í lið Njarðvíkur eftir meiðsli og skoraði 50 stig í góðum sigri liðsins á Stjörnunni á útivelli. Lokatölur 74-83, Njarðvík í vil.

Þetta var þriðji 50 stiga leikur Tyson-Thomas í vetur en hún er stigahæsti leikmaður deildarinnar með 40,3 stig að meðaltali í leik.

Njarðvík er í 4. sæti deildarinnar með tíu stig en Stjarnan í því fimmta með átta stig. Garðbæingar hafa tapað þremur leikjum í röð eftir ágætis byrjun á tímabilinu.

Þá sótti Skallagrímur sigur til Grindavíkur.

Tölfræðin í leikjum kvöldsins:

Snæfell-Valur 73-82 (20-23, 16-19, 20-9, 10-15, 7-16)

Snæfell: Aaryn Ellenberg-Wiley 33/7 fráköst/9 stolnir, Berglind Gunnarsdóttir 13/6 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 13/4 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 11/4 fráköst, Sara Diljá Sigurðardóttir 3, Andrea Björt Ólafsdóttir 0/4 fráköst, María Björnsdóttir 0/6 fráköst.

Valur: Hallveig Jónsdóttir 20, Guðbjörg Sverrisdóttir 17/4 fráköst, Mia Loyd 15/25 fráköst/5 stoðsendingar, Dagbjört Samúelsdóttir 13/4 fráköst/5 stoðsendingar, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 11, Bergþóra Holton Tómasdóttir 6/5 fráköst.

Haukar-Keflavík 46-76 (8-22, 9-17, 11-26, 18-11)

Haukar: Kelia Shelton 15/12 fráköst, Dýrfinna Arnardóttir 12, Rósa Björk Pétursdóttir 11/4 fráköst, Anna Lóa Óskarsdóttir 4/4 fráköst, Ragnheiður Björk Einarsdóttir 4.

Keflavík: Emelía Ósk Gunnarsdóttir 17/5 fráköst/7 stolnir, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 13/4 fráköst, Erna Hákonardóttir 9, Ariana Moorer 9/12 fráköst, Birna Valgerður Benónýsdóttir 8/5 fráköst/5 varin skot, Irena Sól Jónsdóttir 7, Elsa Albertsdóttir 6/5 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 4/6 fráköst/5 stoðsendingar, Andrea Einarsdóttir 2, Kamilla Sól Viktorsdóttir 1, Svanhvít Ósk Snorradóttir 0/4 fráköst, Þóranna Kika Hodge-Carr 0/4 fráköst.

Stjarnan-Njarðvík 74-83 (20-19, 16-23, 19-18, 19-23)

Stjarnan: Danielle Victoria Rodriguez 25/10 fráköst/7 stoðsendingar, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 23/11 fráköst, Jónína Þórdís Karlssdóttir 7, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 6/4 fráköst, Jenný Harðardóttir 6, Viktoría Líf Steinþórsdóttir 4, Hafrún Hálfdánardóttir 2/4 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 1/4 fráköst.

Njarðvík: Carmen Tyson-Thomas 50/18 fráköst/5 stoðsendingar, María Jónsdóttir 8/4 fráköst, Heiða Björg Valdimarsdóttir 6, Björk Gunnarsdótir 6/7 fráköst/5 stoðsendingar, Árnína Lena Rúnarsdóttir 5, Soffía Rún Skúladóttir 5/4 fráköst, Hulda Bergsteinsdóttir 3, Júlia Scheving Steindórsdóttir 0/6 fráköst.

Grindavík-Skallagrímur 61-72 (15-7, 18-20, 17-26, 11-19)

Grindavík: Ashley Grimes 36/14 fráköst/3 varin skot, María Ben Erlingsdóttir 9/13 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 6, Sigrún Elfa Ágústsdóttir 5, Ingibjörg Jakobsdóttir 2, Lovísa Falsdóttir 2/5 fráköst, Jeanne Lois Figueroa Sicat 1/5 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 0/8 fráköst.

Skallagrímur: Tavelyn Tillman 29/11 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 12/7 fráköst, Sigrún Sjöfn  Ámundadóttir 9/12 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 8, Fanney Lind Tomas 6/5 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 4/10 fráköst, Guðrún Ósk Ámundadóttir 2/5 fráköst, Sólrún Sæmundsdóttir 2, Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir 0/5 fráköst.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×