Bakþankar

Hallgrímur Pétursson snýr aftur

Óttar Guðmundsson skrifar
Margir hafa haft áhyggjur af Framsóknarflokknum á síðustu misserum. Formaðurinn liggur undir stöðugu ámæli og fjöldi misviturra manna glefsar í hann og aðra flokksmenn. Það kom vel á vonda að Hallgrímur heitinn Pétursson birtist skynugum bónda norður í landi í draumi á dögunum. Hallgrímur kom haltrandi inn svefnherbergisgólfið, staðnæmdist við rúmstokkinn og handlék nýlega útgáfu af Passíusálmunum. Hann horfði á manninn dapurlegum augum og fór með þessar nýju heilræðavísur. Að því búnu snerist hann á hæl og hvarf manninum sýnum. Bóndinn vaknaði, mundi vísurnar og sendi þær mér í tölvupósti:

Lastaðu aldrei lítilmagna

og láttu þá í friði

sem eiga litlu láni að fagna

á landsmálanna sviði.

Framsóknar við flokkinn skaltu

friðsamlega láta,

víst ávallt þann vana haltu

ef veigalitlir gráta.

Aldrei skyldi í þá glefsað

sem ábyrgð þunga bera,

og víst skal þeim ei verða refsað

sem vita ei hvað þeir gera.

 

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.






×