Lífið

Hallgrímur Helgason fær nýtt hlutverk

Hallgerður Hallgrímsdóttir
Hallgerður Hallgrímsdóttir Vísir/Anton Brink
Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason á von á sínu fyrsta afabarni.

Dóttir hans, Hallgerður Hallgrímsdóttir myndlistakona, á von á sínu fyrsta barni.

Deildi hann gleðifréttunum með Facebook-vinum sínum í vikunni þegar hann birti mynd sem hann kallaði fyrstu afateikninguna. Þar hafði hann myndskreytt á skemmtilegan hátt ljósmynd af Hallgerði.

„Þetta er bara eintóm gleði og hamingja,“ sagði Hallgerður í samtali við Fréttablaðið , en von er á barninu í heiminn þann 15. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×