Innlent

Hálka og kuldi um land allt

Samúel Karl Ólason skrifar
Skafrenningur er á vegum víða og þæfingsferð á fjallvegum .
Skafrenningur er á vegum víða og þæfingsferð á fjallvegum . Vísir/Vilhelm
Víða um land er hálka eða snjóþekja ásamt skafrenningi á vegum. Búist er við stormi um sunnan Vatnajökuls og á sunnanverðum Austfjörðum fram undir kvöld. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að í byrjun vikunnar muni kalt loft úr norðri steypast yfir okkur og að frost gæti farið að bíta í kinnarnar.

„Norðanáttin í dag verður ýmist strekkingur eða allhvöss, en það geta myndast staðbundnir vindstrengir af stormstyrk, og er þeirra helst að vænta sunnan Vatnajökuls og syðst á Austfjörðum. Eins og svo oft áður fylgja norðanáttinni él norðan- og austanlands, en sunnan heiða verður bjart veður.“

Þar að auki segir að draga muni úr vindinum í kvöld og í nótt. Hins vegar geti norðanáttin verið lengi að ganga niður og er búist við að hún haldi velli á morgun en í veikari mæli. Áfram verður kalt á sunnanverðu landinu sem og él, en þurrt.

Veðurhorfur á landinu

Norðan 10-18 m/s, en 18-23 í vindstrengjum sunnan Vatnajökuls og á sunnanverðum Austfjörðum. Él norðan- og austanlands, en bjartviðri sunnan heiða. Kólnandi veður, frost 2 til 9 stig síðdegis. Dregur smám saman úr vindi í kvöld og nótt, norðan 5-13 þegar kemur fram á morgundaginn og él, en léttskýjað sunnantil á landinu. Áfram kalt í veðri.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Gengur í norðan 5-13 m/s eftir hádegi. Bjartviðri og kólnandi veður, frost 3 til 8 stig í kvöld. Lægir seint á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Norðan 5-13 m/s og él, en léttskýjað sunnantil á landinu. Frost 3 til 10 stig.

Á miðvikudag:

Austlæg átt 3-8 m/s og úrkomulaust að mestu, en 8-13 og él með suðurströndinni. Hiti frá frostmarki syðst, niður í 10 stiga frost í innsveitum fyrir norðan.

Á fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag:

Útlit fyrir suðaustan- og austanátt. Snjókoma eða slydda með köflum um landið sunnanvert og hiti um eða rétt yfir frostmarki. Lengst af bjart veður norðantil og vægt frost.

Frekari upplýsingar um færð á vegum má finna á vef Vegagerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×