Innlent

Hálka eða hálkublettir víða

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/GVA
Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum og hálka eða hálkublettir eru víða í uppsveitum á Suðurlandi. Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja og éljagangur er austan Blönduóss.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Vesturlandi og Vestfjörðum en á Þröskuldum er snjóþekja sem verið er að hreinsa. Þoka er á Bröttubrekku.

Á Austurlandi er hálka eða snjóþekja víða en þó er greiðfært frá Djúpavogi og suður að Öræfasveit. Þar taka við hálkublettir að Vík í Mýrdal.

Hægt er að fylgjast með færð og veðri hér á vef Vegagerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×