Innlent

Hálka á Reykjanesbraut

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Fjórir bílar höfnuðu utan vegar á Reykjanesbraut á fimmta tímanum í dag. Einn hafnaði á staur en engin slys urðu á fólki. Hálka og éljagangur er víða á Suðurnesjum og lofthiti um þrjú stig. Lögreglan á Suðurnesjum varar fólk því við hálku á þessum slóðum.

„Það gerði skyndihálku en eins og er, er haglél og krapi á Reykjanesbraut. Flestir eru á sumardekkjum og hafa nokkrir runnið útaf. Þess vegna er betra að hafa  varann á,“ segir lögreglumaður hjá lögreglunni Suðurnesjum í samtali við Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×