Innlent

Hálft kíló af maríjúana haldlagt í Vestmannaeyjum

Bjarki Ármannsson skrifar
Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á um hálf kíló af maríjúana við húsleit í heimahúsi í gær.
Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á um hálf kíló af maríjúana við húsleit í heimahúsi í gær. Vísir/Pjetur
Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á um hálf kíló af maríjúana við húsleit í heimahúsi í gær. Húsleitin var gerð eftir ábendingu um að húsráðandinn væri viðriðinn sölu fíkniefna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu. Tveir karlmenn á fimmtugsaldri, annar þeirra húsráðandinn, voru handteknir vegna rannsóknar málsins og vistaðir í fangageymslu. Að sögn lögreglu telst málið að mestu upplýst en húsráðandinn viðurkenndi að vera eigandi efnanna og hafa stundað sölu og dreifingu á fíkniefnum í Vestmannaeyjum á undanförnum mánuðum.

Mennirnir tveir hafa áður komið við sögu lögreglu vegna mála sem tengjast fíkniefnum. Við leitina var einnig lagt hald á áhöld  til sölu og neyslu fíkniefna auk þess sem nokkuð magn af peningum var haldlagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×