Innlent

Hálfsjötugur maður féll fjóra metra úr stiga

Atli Ísleifsson skrifar
Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.
Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Vísir/Vilhelm
Hálfsjötugur karlmaður féll fjóra metra úr stiga á Suðurnesjum fyrr í vikunni þegar listi brotnaði á húsi sem hann studdi sig við.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að maðurinn hafi lent á stétt og fundið til eymsla í baki. Hann var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

Nokkuð hefur verið um slys í umdæmi lögreglunnar það sem af er vikunni. Þannig segir að kona hafi meiðst á öxl þegar hún var í leikfimi með fleiri konum þar sem talið var að hún hefði farið úr axlarlið. Var hún einnig flutt á HSS með sjúkrabíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×