Erlent

Hálfri milljón barna stefnt í hættu í Mosúl

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Mikill og svartur reykur berst frá olíustöð sem brennur skammt frá Debaga-flóttamannabúðunum, en þangað er von á hundruðum þúsunda flóttamanna á næstunni.
Mikill og svartur reykur berst frá olíustöð sem brennur skammt frá Debaga-flóttamannabúðunum, en þangað er von á hundruðum þúsunda flóttamanna á næstunni. vísir/EPA
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, segir að meira en hálf milljón barna og fjölskyldur þeirra í Mosúl verði í mikilli hættu næstu vikurnar vegna hernaðar­aðgerða írakska hersins og hersveita Kúrda.

Hersveitirnar hófu í byrjun vikunnar sókn gegn vígasveitum Daish-samtakanna, sem nefna sig Íslamskt ríki og hafa haft Mosúl á sínu valdi í rúmlega tvö ár.

Fjöldi barna hefur nú þegar flúið borgina og óttast er að mörg þeirra geti orðið innlyksa á svæðinu eða orðið fyrir árásum.

Starfsfólk UNICEF kom í vikunni til bæjarins Al Houd, sem er skammt frá Mosúl. Þar hittu þau konu að nafni Zainab sem var þar með fjórum dætrum sínum. Hún sagðist vilja komast aftur heim til sín, til fjölskyldunnar og geta sent börnin sín þar í skóla.

Þegar vígasveitir Daish-samtakanna náðu bænum á sitt vald fyrir tveimur árum lögðu þau undir sig hús fjölskyldu hennar. Hún þurfti að flytja til ættingja sinna og var aldrei örugg um líf sitt.

„Við vorum hrædd, svöng og þurfandi allan tímann,“ sagði hún við starfsfólk UNICEF. Hún óttaðist sérstaklega um dætur sínar fjórar, því vígamennirnir tóku fjölmargar stúlkur frá fjölskyldum sínum.

„Sonur minn er sex ára svo hann var ekki tekinn, en eldri drengir voru teknir í bardagasveitir eða settir í þjálfun til að verða uppljóstrarar fyrir aðila átakanna,“ sagði hún.

UNICEF hefur, rétt eins og fleiri hjálparsamtök og alþjóðastofnanir, skorað á alla aðila átakanna að virða alþjóðalög og vernda börn.

„Genfarsamningarnir og viðbætur við þá kveða skýrt á um að aðilar átaka skuli til dæmis gera greinarmun á almenningi og hermönnum,“ segir í tilkynningu frá UNICEF, „og þeir skulu beina aðgerðum sínum að hernaðarlegum skotmörkum eingöngu. Bannað er að skjóta á skóla, sjúkrahús, leikskóla og leikvelli.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Þúsundir flýja átök við Mosúl

Harðir bardagar hafa geisað í næsta nágrenni borgarinnar Mosúl í Írak. Íraski stjórnarherinn hefur ásamt hersveitum Kúrda sótt að borginnisíðan á mánudag.

ISIS myrtu hundruði í Mosul

Fullyrt er að ISIS hafi myrt 284 menn og drengi í Mosul eftir að hafa nýtt þá sem mannlega skyldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×