Lífið

Hálfbróðirinn stakk ástmann fyrrverandi eiginkonu sinnar í andlitið

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Stephen Angelo Simpson, hálfbróðir leik- og söngkonunnar Jennifer Hudson, var handtekinn á þriðjudag fyrir að stinga mann aðfaranótt þriðjudags. WWMT segir frá þessu.

Atvikið átti sér stað í íbúð eiginkonu Stephens, en þau eru skilin að borði og sæng. Stephen á að hafa ráðist inn á heimili hennar og stungið kærasta hennar ítrekað í andlitið.

Nágranni hennar, Torrey Hunt, segir hana og kærasta hennar hafa leitað hjálpar hjá sér um þrjú leytið aðfaranótt þriðjudags. 

„Ég opna hurðina og sé blóð alls staðar. Hann var stunginn í höku og brjóstkassa,“ segir Torrey í samtali við WWMT.

Lögreglumaðurinn Adam DeBoer segir að eiginkona Stephens hafi læst sig inná baðherbergi þangað til Stephen yfirgaf íbúðina.

„Þetta virðist vera viðvarandi deila um konu,“ segir Adam.

Samkvæmt frétt WWMT var Stephen á skilorði og á að baki nokkrar handtökur, meðal annars vegna heimilisofbeldis. Síðast var hann handtekinn fyrir að ráðast á konu sína í febrúar. Hann er nú í gæsluvarðhaldi í Paw Paw í Michigan.

Hálfsystir hans Jennifer hefur ekki tjáð sig um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×