Innlent

Hálendisvaktin aðstoðar þúsundir ferðamanna á ári hverju

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hálendisvaktin sinnti um 2000 verkefnum í fyrrasumar.
Hálendisvaktin sinnti um 2000 verkefnum í fyrrasumar. vísir/vilhelm
Hálendisvakt Slysavarnarfélagsins Landsbjargar hefst á morgun og verður starfandi út ágúst. Þetta er tíunda sumarið í röð sem vaktin starfar. Um 200 sjálfboðaliðar koma að verkefninu hver hópur tekur viku í senn á hálendinu.

„Megintilgangur verkefnisins er að vera með skjótara viðbragð ef það koma upp slys á hálendinu. Þegar við byrjuðum með hálendisvaktina sáum við að verkefnum á hálendinu var að fjölga og það var erfitt og dýrt að kalla sjálfboðaliðana út. Verkefnið hefur þó gjörbreyst frá því sem var þegar við byrjuðum þó að tilgangurinn sé auðvitað sá sami, þar sem ferðamönnum hefur fjölgað mikið,“ segir Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri slysavarna ferðamanna hjá Landsbjörgu.

Hann bendir á að í fyrrasumar hafi hálendisvaktin sinnt um 2000 verkefnum en þar af voru um 500 sem Landsbjörg flokkar sem alvarleg útköll. Af þessum 500 útköllum voru tæplega 100 slys en til samanburðar sinnti hálendisvaktin 50 slysum árið áður.

Jónas segir að á þeim tíma frá því að hálendisvaktin hafi tekið til starfa hafi nokkrum mannslífum verið bjargað.

„Ég held að það alveg hægt að fullyrða að það hefði farið mun verr í einhverjum tilfellum ef við hefðum ekki verið svona nálægt því það munar svo miklu að vera með skjótan viðbragðstíma.“

Aðspurður segir Jónas að Landsbjörg hafi aðstoðað á bilinu 6000-8000 ferðamenn á ári seinustu fjögur ár. Hálendisvaktin aðstoðar meirihluta þeirra ferðamanna á þeim tveimur mánuðum sem hún starfar, eða um 4000 ferðamenn á ári að sögn Jónasar.

Ástandið á hálendinu er nokkuð óvenjulegt núna en mikið er um snjó og krap þar núna. Jónas segir að það komi fólki kannski á óvart en að þetta hafi ekki verið svo óvenjulegt ástand fyrir 10-20 árum síðan.

„En það er miklu meiri snjór núna en verið hefur síðan ferðamannabólan sprakk fyrir nokkrum árum. Á gönguleiðinni yfir Laugaveginn ertu til dæmis ennþá góðan þriðjung leiðarinnar í snjó og það er auðvitað erfiðara að labba í snjó heldur en ekki.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×