Innlent

Haldið sofandi eftir bílslys við Hrútafjarðarháls

Bjarki Ármannsson skrifar
Kona var flutt með þyrlu á Landspítalann í gær.
Kona var flutt með þyrlu á Landspítalann í gær. Vísir/Vilhelm
Konunni sem slasaðist í bílslysi við Hrútafjarðarháls í gærkvöldi er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans.

Hún var flutt með sjúkrabíl að Staðarskála, þangað sem þyrlan sótti hana og flutti á Landspítalann í Fossvogi. 

Ökumenn voru einir í bílnum en ekki hafa fengist upplýsingar um líðan hins ökumannsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×