Innlent

Haldið í einangrun á Hverfisgötu: „Ekki til eftirbreytni“

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá komu lögreglu með skipverjana á lögreglustöðina á Hverfisgötu.
Frá komu lögreglu með skipverjana á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Vísir/Ernir
Mennirnir tveir sem eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að hvarfi Birnu Brjánsdóttur aðfaranótt laugardags voru hafðir í einangrun á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í nótt. Hið sama gildir um annan skipverja sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald eftir miðnætti vegna gruns um umfangsmikið fíkniefnasmygl.

Oftast nær eru gæsluvarðhaldsfangar vistaðir í fangelsinu á Litla Hrauni en Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni á hvarfi Birnu, sagði í samtali við Vísi í gærkvöldi að lögreglan vildi hafa gæsluvarðhaldsfangana tvo nálægt sér því þeir verða yfirheyrðir strax í morgunsárið, en yfirheyrslum yfir þeim lauk rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi.

„Þetta er tengt því að það er langt á Litla Hraun,“ sagði Grímur við Vísi í gærkvöldi, en um klukkutíma akstur er þangað frá Reykjavík.

Aðstaðan vart boðleg

Bent hefur verið á að það aðstaða fyrir gæsluvarðhaldsfanga sem sæta einangrun sé vart boðleg í lögreglustöðinni á Hverfisgötu og tók Grímur undir það.

„Hún er það ekki. Þetta verður ekki nema bara núna í nótt. Þetta verður ekki til framtíðar, alls ekki. Hins vegar hefur þetta gerst þegar ekki hefur verið pláss, en ég ætla ekki að mæla því bót, þetta er ekki til eftirbreytni.“

Hann sagði ekki mikið hafa komið fram við yfirheyrslur í gær, en þó þokist málið áfram. Verða mennirnir fluttir á Litla Hraun að loknum yfirheyrslum í dag.

Annar maðurinn leiddur fyrir dómara.Vísir/anton brink
Úrskurði áfrýjað til Hæstaréttar

Mennirnir tveir eru skipverjar af grænlenska togaranum Polar Nanoq en greint var frá því í Fréttablaðinu í morgun að þeir hefðu verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli 211. grein almennra hegningarlaga sem fjallar um manndráp.

Lögreglan hafði farið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir þeim en Héraðsdómur Reykjaness varð ekki við þeirri kröfu. Hefur ákæruvaldið því kært þann úrskurð til Hæstaréttar.

Mennirnir voru handteknir um hádegisbil á miðvikudag af íslenskum sérsveitarmönnum um borð í Polar Nanoq. Þriðji maðurinn var handtekinn síðar sama dag í togaranum grunaður um að búa yfir upplýsingum um hvarf Birnu. Lögreglan sleppti honum í gær og er hann frjáls ferða sinna.

Rannsókn í Polar Nanoq leitt í ljós nokkuð af gögnum

Vísir greindi frá því í gær að rannsóknargögn sem fundist hefðu í bílnum bentu til þess að misindisverk hefði farið þar fram.

Rannsókn tæknideildar lögreglunnar í Polar Nanoq hefur jafnframt leitt í ljós nokkuð af gögnum sem lögregla telur að geti komið að gagni við að upplýsa málið.

Í tvo daga hafa björgunarsveitir leitað á Strandarheiði, á vegarkaflanum sem liggur upp að Keili, með leitarhunda og nokkurn mannskap. Þá kom TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, að leitinni í gær. Leit verður haldið áfram á því svæði í dag.


Tengdar fréttir

Ók einn frá höfninni og kom til baka tæpri klukkustund síðar

Tveir menn sem grunaðir eru um aðild að hvarfi Birnu Brjánsdóttur komu saman á rauðri Kia Rio bifreið að Hafnarfjarðarhöfn klukkan rúmlega sex að morgni laugardags. Annar þeirra fór um borð í togarann en hinn ók í burtu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×