Menning

Halda tónleika í gömlu sláturhúsi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarkonurnar hafa sótt sér innblástur á Hvammstanga og gefa til baka með ókeypis tónleikum annað kvöld.
Tónlistarkonurnar hafa sótt sér innblástur á Hvammstanga og gefa til baka með ókeypis tónleikum annað kvöld. Mynd/Nanna Höjgaard Grettisdóttir
Nokkrar hæfileikakonur úr KÍTÓN, félagi kvenna í tónlist, halda ókeypis tónleika annað kvöld í Sjávarborg á Hvammstanga, sem breyst hefur úr sláturhúsi í fallegan veitingastað og menningarhús.

 Konurnar hafa dvalið í bænum frá 4. september í tónsmiðju og unnið saman í pörum við að semja tónlist og texta. Nú ætla þær að flytja afrakstur þeirrar vinnu.

Þátttakendur í tónsmiðjunni eru Ásbjörg Jónsdóttir, Ingibjörg Elsa Turchi, Ingunn Huld, Unnur Sara Eldjárn, Unnur Birna og Þóra Björk.

„Það var mikilvægt fyrir okkur að geta komist frá amstri hversdagsleikans og unnið óhindrað í tónlist á nýjum stað.

Hvammstangi er gersamlega yndislegur staður og fólkið ekki síðra. Við leggjum áherslu á samstarf við heimamenn enda búa hér þvílíkar hæfileikabombur.“

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 8. september 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×