Lífið

Halda því fram að Will Smith og Jada Pinkett Smith séu að skilja

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jada og Will hafa verið gift í 17 ár.
Jada og Will hafa verið gift í 17 ár. Vísir/getty
Eftir 17 ára hjónaband er komið að endastöð hjá Will Smith og Jada Pinkett Smith, þau hafa ákveðið að skilja.

Þetta kemur fram á vefsíðunni Radar Online. „Hjónabandið hefur verið erfitt undanfarin ár,“ segir heimildarmaður síðunnar.

„Þau eru einfaldlega búin á því andlega og ákváðu að taka snúruna úr sambandi.“

Sami heimildarmaður segir að hjónin hafi nú þegar komist að samkomulagi um skilnað en þau eru metin á 240 milljónir Bandaríkjadali eða því sem samsvarar 32 milljörðum íslenskra króna.

Saman eiga þau tvö börn, Jaden, 17 ára og Willow, 14 ára. 

Uppfært klukkan 19.59:

Will Smith vill þó sjálfur ekkert kannast við skilnaðinn. Hann setti eftirfarandi færslu á Facebook-síðu sína í gær:



Under normal circumstances, I don't usually respond to foolishness. (Because it's contagious) But, so many people have...

Posted by Will Smith on Monday, August 3, 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×