Íslenski boltinn

Halda Óskar Örn og Kjartan Henry áfram að hrella ÍBV? | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Eiður Aron Sigurbjörnsson og Gunnar Þorsteinsson í baráttunni og Óskar Örn Hauksson fylgist með.
Eiður Aron Sigurbjörnsson og Gunnar Þorsteinsson í baráttunni og Óskar Örn Hauksson fylgist með. vísir/stefán
ÍBV og KR mætast í undanúrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í kvöld, en búist er við fjölmenni á völlinn þar sem Þjóðhátíð hefst í dag.

Leikurinn hefst klukkan 18.00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.

Eyjamenn vonast til að jarða KR-grýluna í bikarnum, en Íslandsmeistararnir hafa unnið ÍBV í Eyjum í bikarkeppninni þrisvar sinnum á síðustu fjórum árum.

Þessi rispa hófst árið 2010 þegar KR vann ÍBV í 32 liða úrslitum, 1-0. KjartanHenryFinnbogason skoraði eina markið á 52. mínútu.

Tveimur árum síðar mættust liðin aftur í góðum fótboltaleik, en þá vann KR aftur, 2-1. Eyjamenn komust yfir með marki Eyþórs Helga Birgissonar, sem nú leikur með Ólafsvík, á 17. mínútu.

En þá mætti til leiks Óskar Örn Hauksson. Hann skoraði tvö glæsileg mörk á síðustu fjórum mínútum leiksins og skellti ÍBV í átta liða úrslitum keppninnar. Þessi mörk má sjá í lýsingu Valtýs Bjarnar Valtýssonar hér að neðan.

Liðin mættust svo aftur í átta liða úrslitunum í fyrra, en þá vann KR öruggan sigur, 3-0. Eyjamenn léku reyndar manni færri frá 34. mínútu eftir að framherjinn AaronSpear fékk rautt spjald og Ragnar Pétursson fauk út af mínútu fyrir leikslok.

Óskar Örn Hauksson skoraði fyrsta mark KR, en Kjartan Henry Finnbogason hin tvö. Þeir tveir hafa séð um markaskorun KR í þessum þremur leikjum.

Enski bakvörðurinn Matt Garner er eini Eyjamaðurinn sem spilað hefur alla þrjá leikina, en minni breytingar hafa verið á KR-liðinu. Grétar Sigfinnur Sigurðarson, BaldurSigurðsson og Kjartan Henry Finnbogason spiluðu leikina þrjá og verða væntanlega í eldlínunni í kvöld.

Hér að neðan má sjá mörkin og helstu atvik úr leikjunum frá 2012 og 2013.

Óskar Örn sér um ÍBV 2012: 3-0 sigurinn 2013:

Tengdar fréttir

Verða vonandi tólfti leikmaður liðsins

KR hefur hent ÍBV úr bikarnum þrisvar sinnum á síðustu fjórum árum. Nú mætast liðin á ný í Eyjum. Matt Garner segir bikarinn hafa bjargað tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×