Innlent

Hald lagt á mikið magn af sterum og lyfjum

Atli Ísleifsson skrifar
Um var að ræða tæp þrjú kíló af sterum í duft- og gelformi og rúmlega fimm kíló af lyfjum.
Um var að ræða tæp þrjú kíló af sterum í duft- og gelformi og rúmlega fimm kíló af lyfjum. Mynd/Tollstjóri
Tollstjóri haldlagði nýverið mikið magn af sterum og lyfjum sem bárust hingað til lands með póstsendingu.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að um hafi verið að ræða tæp þrjú kíló af sterum í duft- og gelformi og rúmlega fimm kíló af lyfjum, einnig í duftformi, sem reyndust vera tvær tegundir af staðdeyfilyfjum.

„Sendingin barst frá Hong Kong og hafði lyfjunum og sterunum verið komið fyrir í pakkningum utan af matvælum. Málið var kært til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem fer með rannsókn þess,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×