Háhyrningar höfða mál gegn sædýrasafni

Fréttablaðið Erlent 08. febrúar 2012 03:13
Hvalir Háhyrningurinn Tilikum sýnir listir sínar í sædýrasafni Seaworld.
Hvalir Háhyrningurinn Tilikum sýnir listir sínar í sædýrasafni Seaworld.
Alríkisdómari í Bandaríkjunum hafnaði því á mánudag að vísa frá máli sem gæti skorið úr um hvort dýr njóti sömu verndar gegn þrælahaldi og menn. Dýraverndarsamtökin PETA hafa höfðað málið fyrir hönd fimm háhyrninga.

Í stefnu PETA segir að farið sé með háhyrningana eins og þræla í sædýrasöfnum Seaworld. Þeir séu neyddir til að skemmta gestum og búa í glerbúrum.

Theodore Shaw, lögmaður Seaworld, krafðist þess að málinu yrði umsvifalaust vísað frá dómi, en hafði ekki erindi sem erfiði. Hann sagði dómsmálið sóun á bæði tíma og peningum.

PETA vísar til ákvæða í stjórnarskrá Bandaríkjanna, sem leggur blátt bann við þrælahaldi. Þessu mótmælir Shaw og bendir á að stjórnarskráin nái aðeins yfir réttindi manna. Þar sé raunar ekkert fjallað um mannréttindi dýra, hvorki smáhvela né annarra. Slík réttindi gætu að auki haft áhrif víðar, til dæmis mætti líta til lögregluhunda, eldiskjúklinga og annarra dýra.

Dómarinn ákvað að vísa málinu ekki strax frá, heldur tekur sér umhugsunarfrest til að íhuga næstu skref þessa óvenjulega dómsmáls.

Óvíst er hvort háhyrningarnir Tilikum, Katina, Kasatka, Corky og Ulises bíða spenntir eftir niðurstöðunni, þó að málið sé höfðað í þeirra nafni. - bj

Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 25. maí. 2012 05:30

Mannréttindabrot framin á báða bóga

Bæði stjórnarherinn og sveitir uppreisnarmanna stunda manndráp og pyntingar í Sýrlandi. Me...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 04:00

Áhyggjur af afdrifum fjölskyldu Chen

Eldri bróðir kínverska flóttamannsins Chen Guangcheng, Chen Guangfu, hefur flúið heimabæ s...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 23:55

Loftsteinadrífa skellur á Jörðinni

Bandaríski geimfarinn Don Pettit hefur mikið dálæti af því að deila ljósmyndum sínum. Þett...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 22:33

"Þetta er Nelson. Hann stal símanum mínum"

Bandarísk kona sem glataði iPhone snjallsímanum sínum í skemmtisiglingu fyrir nokkru hefur...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 22:05

Starfsfólk Heathrow undirbýr sig fyrir Ólympíuleikana

Starfsfólk Heathrow flugvallarins í Lundúnum undirbýr sig nú fyrir Ólympíuleikana sem hald...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 21:06

Tíu þjóðir komust áfram í Eurovision

Mikið var um dýrðir í Bakú í kvöld þegar seinni undankeppni Eurovision fór fram. Tíu þjóði...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 20:41

Rætt um lofthelgi Íslands í Finnlandi

Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, neitaði í dag ásökunum stjórnarandstæðinga um ...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 15:56

Fellibylurinn Bud færist nær Mexíkó

Fellibylurinn Bud færist nú nær ströndum Mexíkó en hann er fyrsti fellibylur ársins á Kyrr...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 11:59

Nektarmynd af forsetanum harðlega gagnrýnd

Afríska þjóðarráðið, stærsti stjórnmálaflokkur Suður Afríku og flokkur forsetans Jakobs Zu...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 10:28

Neitaði að fljúga með kvenkyns flugstjóra

Karlmanni var vísað út úr flugvél á vegum brasilíska flugfélagsins Trip Airlines eftir að ...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 08:15

Dönsk sveitarfélög banna reykingar í vinnunni

Starfsmenn hins opinbera í Danmörku sem reykja eiga nú undir högg að sækja. Fjögur sveitar...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 03:13

Dæmdur í langa fangelsisvist

Shakil Afridi, læknir i Pakistan, hefur hlotið þungan fangelsisdóm og fésekt að auki fyrir...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 12:02

Plastpokar bannaðir í Los Angeles

Borgarstjórn Los Angeles borgar hefur ákveðið að banna alfarið notkun plastpoka í verslunu...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 11:55

Ólympíuleikar 2020: Þrjár borgir koma til greina

Þrjár borgir eru eftir í baráttunni um að fá að halda Ólympíuleikana árið 2020. Ekki er rá...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 08:06

Góð þátttaka í Egyptalandi

Forsetakosningarnar í Egyptalandi fara nú fram annan daginn í röð en tvo daga þarf til end...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 07:00

Langar biðraðir við kjörstaði

„Byltingin hefur breyst mikið. Bæði til hins betra og til hins verra,“ segir W...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 05:00

Biðin styttist hjá Assange

Hæstiréttur Bretlands tilkynnti í gær að á miðvikudaginn í næstu viku verði kveðinn upp úr...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 04:00

Líkjast persónuleika manna

Simpansar og órangútanar eru með persónuleika sem líkjast mjög persónuleika manna. Þetta e...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 03:30

Ræddu útgáfu evruskuldabréfa í Brussel

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hittust á fundi í Brussel í gærkvöldi og ræddu fjárhagsva...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Erlent / Háhyrningar höfða mál gegn sædýrasafni