Viðskipti erlent

Hagnast á beinni útsendingu Justin Timberlake úr Kórnum

Samúel Karl Ólason skrifar
Justin Timberlake stígur á sviðið á Kórnum ásamt fríðu föruneyti 24. ágúst.
Justin Timberlake stígur á sviðið á Kórnum ásamt fríðu föruneyti 24. ágúst. Vísir/Getty
Samningur Live Nation og Yahoo um að sýna beint frá tónleikum á hverjum degi mun auka hagnað beggja fyrirtækja. Frá þessu er sagt á vef Seattle Times, þar sem farið er yfir hvernig þróunin hefur verið á þessum markaði.

Fyrirkomulag fyrirtækjanna byrjaði á tónleikum Dave Matthews band um miðjan júlí. Með því er fólki gert kleyft að horfa á tónleikana í beinni útsendingu á netinu. Tónleikana er hægt að sjá hér á vef Yahoo.

Umboðsmenn tónlistarmanna segjast ekki óttast minnkandi sölu á tónleika með tilkomu útsendinganna. Það að fara á tónleika, sé allt öðruvísi en að horfa úr sófanum eða á spjaldtölvu. Þar að auki sé yfirleitt þegar uppselt á tónleikana, þegar ákvörðun um útsendinguna er tekin. Sem dæmi eru nefndi tónleikar Justin Timberlake á Íslandi, þann 24. ágúst.

Þá segir á vefnum að tónleikahaldarar á heimsvísu hafi ekki átt gott átt. Sérstaklega þar sem margir af stærri tónlistarmönnum heims hafi hætt við tónleika til að spila á tónlistarhátíðum.

Live Nation birti nýlega ársfjórðungsuppgjör sem sýndi fram á tap, en var þrátt fyrir það betra en greinendur á Wall Street höfðu gert ráð fyrir. Þá hafi auglýsingaverð Yahoo hríðfallið á undanförnum misserum.

Seattle Times segir að auðveldara sé að selja auglýsingar fyrir útsendingar heldur en fyrir tónleikana sjálfa.

Tónlistarmennirnir sjálfir hagnast þar að auki á því að þurfa ekki að greiða myndatökumönnum fyrir að taka upp tónleika. Þeir fá einnig allar upptökur til eigin nota, eins og til tónlistarmyndbandsgerðar.


Tengdar fréttir

Kostar sitt að flytja inn Justin Timberlake

Kostnaðurinn við að fá Justin Timberlake til landsins er um 1,5 milljónir dollara eða 170 milljónir íslenskra króna en frá því er greint í Viðskiptablaðinu í dag.

Íslendingar óðir í Timberlake

Mikill fjöldi aðdáenda Justins Timberlake á Íslandi skráði sig í erlendan aðdáendaklúbb kappans í gær.

GusGus hitar upp fyrir Timberlake

Íslenska rafsveitin GusGus mun sjá um að hita mannskapinn upp fyrir tónleika Justins Timberlake sem fram fara í ágúst. Mikil tilhlökkun er innan sveitarinnar sem ætlar að leika sín þekktustu lög.

Um tónleika Justins Timberlake á Íslandi

Eftir marga mánuði af slúðursögum er það loksins staðfest að einn vinsælasti tónlistarmaður heims í dag, Justin Timberlake, er á leið til Íslands.

Leita uppi braskara

Miðar á tónleika Justins Timberlake sem seldir eru á svörtum markaði gætu orðið ógildir

Miði.is hrundi vegna álags

Miði.is reynir nú eftir fremsta megni að koma kerfinu í gang aftur, svo miðasala geti haldið áfram.

Miðabraskarar miður sín

Braskarar hafa sent Miða.is millifærslukvittanir fyrir miðum og endurgreitt kaupendum mismuninn.

Uppselt á Justin Timberlake

16.000 miðar voru í boði á tónleikana. "Það er enginn möguleiki á að það verði fleiri miðar í boði, því miður.“

Þungavigtarhljómsveit með JT

Mikið fagfólk er á leið til landsins með einni skærustu poppstjörnu heims, Justin Timberlake. Hljómsveitin á bak við hann er ekkert slor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×