Viðskipti innlent

Hagnaður Varðar 385 milljónir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Guðmundur Jóhann Jónsson forstjóri Varðar.
Guðmundur Jóhann Jónsson forstjóri Varðar.
Heildarhagnaður Varðar tryggingar hf. eftir skatta var 385 milljónir á síðasta ári en var 506 milljónir árið áður. Iðgjöld ársins námu 5,3 milljarðar króna en voru 4,97 milljarðar árið á undan. 

Eigið fé félagsins var 3,1 milljarður í árslok en var rúmir 3 milljarðar árið áður, arðsemi eigin fjár var 13,7 prósent og eiginfjárhlutfall var 30,4 prósent.

„Það er ánægjulegt hversu vel einstaklingar og fyrirtæki hafa tekið okkur sem traustum valkosti á móti stóru tryggingafélögunum. Við höfum lagt áherslu á mikil gæði innra starfs sem skilar sér í úrvals þjónustu við viðskiptavini. Starfsfólk á hrós skilið,“ segir Guðmundur Jóhann Jónsson forstjóri Varðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×