Viðskipti innlent

Hagnaður TM dregst verulega saman vegna óveðurs

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigurður Viðarsson segir fjárfestingatekjur hafa verið umfram væntingar.
Sigurður Viðarsson segir fjárfestingatekjur hafa verið umfram væntingar. vísir/stefán
„Hagnaður félagsins dregst verulega saman milli ára og skýrist það fyrst og fremst af mikilli hækkun á tjónakostnaði. Veturinn hefur verið einstaklega tjónaþungur, aðallega vegna tíðra óveðra. Fjárfestingatekjur voru á hinn bóginn vel umfram væntingar og vega að einhverju leyti upp tapið af vátryggingastarfseminni,“ segir Sigurður Viðarsson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, um rekstrarafkomu fyrirtækisins á fyrsta fjórðungi.

Hagnaður félagsins dróst verulega saman á milli ára. Heildarhagnaður á fyrsta fjórðungi í ár var 72 milljónir króna en var 700 milljónir í fyrra. 

Tekjur af fjárfestingum námu  tæplega 900 milljónum króna. Bæði innlend og erlend skráð hlutabréf hækkuðu töluvert í verði á fjórðungnum. Afkoma af skuldabréfum var hins vegar undir væntingum sem skýrist af slakri ávöxtun ríkisskuldabréfa. Óverðtryggð ríkisskuldabréf lækkuðu nokkuð á fyrsta ársfjórðungi, en þau vógu þungt í eignasafni félagsins í upphafi árs. Þrátt fyrir það varð 0,5% jákvæð ávöxtun af rikisskuldabréfaeign félagsins á fjórðungnum.

Rúmlega 500 milljóna króna tap af vátryggingastarfssemi skýrist meðal annars af mikilli aukningu í fjölda eigna- og ökutækjatjóna þar sem slæmt tíðarfar skiptir mestu. Fjórðungurinn hefur verið bæði illviðra- og úrkomusamur með þeim afleiðingum að margföldun hefur orðið í fjölda mála tengdum erfiðum akstursskilyrðum, foki og óveðri. Í afkomutilkynningunni segir að tjón af völdum foks og óveðurs hafi verið tæplega 300 á fyrsta fjórðungi ársins 2015 en aðeins 2 á sama tíma í fyrra. Afkoma ábyrgðar- og slysatrygginga var einnig neikvæð og undir væntingum. Aðeins tveir greinaflokkar vátrygginga, sjó- og líftryggingar, skila hagnaði.

Lykiltölur úr rekstri Tryggingamiðstöðvarinnar eru þessar:

  • Heildarhagnaður var 72 m.kr. og hagnaður á hlut var 0,1 kr. (1F 2014: 700 m.kr. og 0,92 kr.)
  • Hagnaður fyrir skatta var 22 m.kr. (1F 2014: 728 m.kr.)
  • Framlegð af vátryggingastarfsemi var neikvæð um 756 m.kr. (1F 2014: jákvæð um 39 m.kr.)
  • Tap af vátryggingastarfsemi var 542 m.kr. (1F 2014: hagnaður var 72 m.kr.)
  • Fjárfestingatekjur voru 872 m.kr. (1F 2014: 758 m.kr.)
  • Samsett hlutfall var 126% (1F 2014: 99%)
  • Eigin iðgjöld jukust um 11% á milli ára
  • Eigin tjón hækkuðu um 55% á milli ára
  • Rekstrarkostnaður hækkaði um 3,2% milli ára
  • Eiginfjárhlutfall var í lok tímabilsins 28,2%
  • Arðsemi eigin fjár var 2,5% eftir skatta (1F 2014: 22,9%)
  • Handbært fé frá rekstri var 766 m.kr (1F 2014: 974 m.kr)





Fleiri fréttir

Sjá meira


×