Viðskipti innlent

Hagnaður Marel eykst milli ára

Sæunn Gísladóttir skrifar
Árni Oddur Þórðarson er forstjóri Marel.
Árni Oddur Þórðarson er forstjóri Marel. vísir/valli
Marel hagnaðist um 17,3 milljónir evra á síðasta ársfjórðungi, jafnvirði 2,2 milljarða. Hagnaðurinn jókst milli ára en hann nam 14,7 milljónum evra, jafnvirði 1,8 milljarða íslenskra króna á sama tímabili í fyrra.

Tekjur námu 234,8 milljónum evra, 29 milljörðum króna, á þriðja ársfjórðungi. Tekjur jukust milli ára en þær námu 189,1 milljón evra á sama tímabili í fyrra.

EBITDA nam 41,5 milljón evra, eða 17,7 prósent tekna á þriðja ársfjórðungi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×